Af hverju náttúruverndargjald í Reykjahlíð? Seinni grein Ólafur H. Jónsson skrifar 17. júlí 2014 07:00 1)Hvers vegna koma ferðaþjónustuaðilar af fjöllum varðandi gjaldtöku 2014? Á vordögum 2013 var Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF) og stærstu aðilum þeirra sem taka á móti skemmtiferðaskipum tilkynnt að gjaldtaka myndi hefjast í Reykjahlíð sumarið 2014. Þeim skilaboðum virðist ekki hafa verið komið til viðskiptavina þeirra erlendis. Þvert á móti birtist stöðugur áróður og rangfærslur í fjölmiðlum. „Viljum ekki skúra á hvern stað, ekki fólk með posa, þetta mun skaða heildarímynd Íslands“ var sagt og ýmislegt þaðan af verra svo sem tillögur um eignarnám. Flestir eru sammála um að gjaldtaka sé nauðsynleg, en eru á móti því að einkaaðilar sjái um sína landareign sjálfir. Hvers vegna? Hefur aðkoma ríkisins verið til fyrirmyndar? Hver eru rökin? Ríkið hefur ekki sýnt það í gegnum tíðina að það standi traustari vörð um náttúruna en einkaaðilar, eða hvað? Allt er þetta dapurlegt og ekki í takt við óskir 90% erlendra ferðamanna skv. opinberum könnunum, sem eru reiðubúnir til að greiða 600-1.200 kr. inn á hvern stað. Hvers vegna þessi andstaða við náttúruverndargjald af hálfu fyrirtækja í ferðaþjónustu, sem selja skipulagðar ferðir inn á land í einkaeigu? Náttúran þarf því aðstoð frá eigendum sínum alveg sama hvort það eru einkaaðilar eða ríkið. Nær engu skattfé hefur verið varið til verndar náttúruperlum Íslands. Samt sem áður fær ríkið árlega 25-30 milljarða í virðisauka frá ferðamönnum. Hvað er í gangi?2)Hvað með lög um almannarétt og náttúruvernd? Jónsbók gerði varla ráð fyrir að t.d. um Mývatnssveit færu 400.000 manns á ári eins og er nú að gerast? Um leið og ferðaþjónustuaðilar selja og hagnast á skipulögðum/auglýstum ferðum sínum inn á land í einkaeigu eins og Reykjahlíð þá getur það varla staðist að almannaréttur sé enn í gildi. Í 14. grein náttúruverndarlaga stendur: „Mönnum er heimilt án sérstaks leyfis landeiganda eða rétthafa að fara gangandi, á skíðum, skautum, óvélknúnum sleðum eða á annan sambærilegan hátt um óræktað land og dveljast þar.“ Síðan segir: „Á eignarlandi í byggð er eiganda eða rétthafa þó heimilt að takmarka eða banna með merkingum við hlið og göngustíga umferð manna og dvöl á afgirtu og óræktuðu landi.“ Hvergi stendur að eigandi megi ekki taka gjald t.d vegna náttúruverndar eða vegna öryggis á viðkomandi stað. Við ætlum ekki að hlutast til um það hvað ríkið gerir með sínar jarðir.3)Setti ríkið ekki 10 milljónir í að byggja upp við Hveri austan Námaskarðs? Hér er mikill misskilningur í gangi. Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið óskaði eftir því að aðeins sveitarfélög gerðu lista yfir þá staði sem mikill fjöldi ferðamanna heimsækir. Þá aðeins til brýnna verkefna á ferðamannastöðum er lúta að verndun náttúru og öryggi ferðamanna. Eigendum félags með stærstu jörð á Íslandi var ekki send slík beiðni eða óskalisti, bara sveitarfélögum! Þrátt fyrir það eru svæði eins og Dettifoss, Hverir og Leirhnjúkur/Víti í Reykjahlíðarlandi. Er þetta ekki skattfé allra Íslendinga? Af hverju þessi mismunun? Skútustaðahreppur (sem leigir stórt landsvæði af landeigendum) sendi að sjálfsögðu inn óskalista yfir staði sem uppfylltu þessi skilyrði, t.d Dimmuborgir (eign Landgræðslunnar), Hveri (eign Reykhlíðunga), Skútustaðagíga (eign ríkis að meirihluta) og Hverfell/Hverfjall (eign Vogamanna). Staðan er nú sú að Skútustaðahreppur fær styrkinn, en hreppurinn á ekki svæðið við Hveri! Það verður að nota styrkinn til uppbyggingar við Hveri, hvergi annars staðar. Af hverju fengu landeigendur Reykjahlíðar ekki möguleika á að senda inn beiðni/óskalista? Veit fólk að af þessum 384 m.kr., sem var úthlutað í 88 verkefni nú 30. maí, fengu sveitarfélög úthlutuð 49% fjármagnsins, ríkistofnanir/Umhverfisstofnun/Skógrækt ríkisins 51% og einkaaðilar 0%! Er þetta ekki forsmekkurinn að því sem koma skal með nýjum náttúrupassa og úthlutun fjármuna sem hann skapar í framtíðinni, eða hvað? Svari hver fyrir sig, en ekki rugla saman Skútustaðahreppi og landeigendum Reykjahlíðar.4)Hvernig sé ég fyrir mér gjaldtöku á Íslandi? Ég hef áður sett fram þá hugmynd að gjaldtaka verði hafin á t.d. 10-12 stærstu og mest sóttu stöðum Íslands eins og þekkist víða erlendis. Mývatnssveit í heild sinni gæti verið eitt af þessum svæðum. Hér væri því eingöngu um samvinnu milli einkaaðila, sveitarfélaga og ríkis að ræða, sem eiga þessar náttúruperlur, en ekki samtaka. Með rafrænni samtengingu er þetta mjög auðvelt í framkvæmd. Jafnvel væri hægt að hafa eitt gjald inn á alla þessa staði. Allt þetta er útfærsluatriði. Það sem vakir fyrir landeigendum Reykjahlíðar er að vernda náttúruna og skapa góða ímynd þegar til lengri tíma er litið. Verið velkomin á upplýsinga- og sölusíðu verkefnis okkar: www.natturugjald.is Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 24.05.2025 Halldór #blessmeta - önnur grein Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir Skoðun Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt? Einar G Harðarson Skoðun Hvers virði er lambakjöt? Hafliði Halldórsson Skoðun Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Nú þurfa foreldrar að vera hugrakkir Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir Skoðun Daði Már týnir sjálfum sér Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson Skoðun Þjóðareign, trú og skattar Svanur Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun #blessmeta - önnur grein Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði er lambakjöt? Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð Elín Íris Fanndal skrifar Skoðun Þjóðareign, trú og skattar Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt? Einar G Harðarson skrifar Skoðun Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnvalda Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar Skoðun Við skuldum þeim að hlusta Ólafur Adolfsson skrifar Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson skrifar Skoðun Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar Skoðun Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Stéttarkerfi Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza BIrgir Finnsson skrifar Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Æfingin skapar meistarann! Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar Skoðun 140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar Skoðun Traust í húfi Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Verðmætasköpun án virðingar Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Daði Már týnir sjálfum sér Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Aðgerðir gegn mansali í forgangi Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Framtíðin fær húsnæði Ingunn Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar
Skoðun Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð Elín Íris Fanndal skrifar
Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson skrifar
Skoðun Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar
Skoðun Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar
Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar
Skoðun Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir Skoðun