Bæjarstjórinn hjálpar Aldrei Snærós Sindradóttir skrifar 18. apríl 2014 22:15 Páll Óskar Hjálmtýsson steig óvænt á stokk VÍSIR/Snærós
Það er saman kominn múgur og margmenni í KNH höllinni á Ísafirði en þar fer fram rokkhátíðin Aldrei fór ég suður í tíunda sinn. Páll Óskar Hjálmtýsson tróð óvænt upp á hátíðinni vegna forfalla hljómsveitarinnar Kött Grá Pjé og tryllti lýðinn líkt og hans er von og vísa. Gísli Halldórsson, Jakob Daníelsson og bæjarstjórinn Daníel JakobssonVÍSIR/SnærósAð vanda er heimilislegur bragur yfir hátíðinni en öll vinna í kringum hana er unnin í sjálfboðaliðum. Bæjarstjóri Ísafjarðar, Daníel Jakobssson, lætur sitt ekki eftir liggja og selur stuttermaboli og annan varning til stuðnings hátíðinni. Honum til halds og trausts er Gísli Halldórsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðar. Skúli mennski og Þórunn Arna KristjánsdóttirVísir/SnærósBúgíband Skúla mennska og Þórunn Arna Kristjánsdóttir opnuðu hátíðina í ár með pompi og prakt. Skúli bauðst jafnan til að opna hana aftur að tíu árum liðnu, á tuttugu ára afmæli hátíðarinnarAldrei fór ég suður er fjölskylduhátíð með heilan skara af börnum. Erlendir ferðamenn hafa jafnan orð á því hve undarlegt það er að lítil börn séu stödd á rokkhátíð. Þessum snáða leið greinilega vel í fangi pabba síns og svaf á meðan tónleikum Contalgen Funeral stóð. Contalgen Funeral frá Skagafirði léku á alls oddi á Aldrei fór ég suður. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, sem leikur á slagverk og syngur, sást meðal annars slá saman leggjum af ónefndu dýri til að framleiða taktinn. Hemúllinn frá Hólmavík tróð í fyrsta skipti upp á Aldrei fór ég suður. Hann söng við elektrónískt popp með þungarokksívafi. Segja má að Hemúllinn hafi verið "pólitíski trúbadorinn" en lög hans snerust jafnan um skuldaleiðréttingu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og valdsmannlega tilburði manna í einkennisbúningum. Hemúllinn kom sá og sigraði á Aldrei í ár. Það er algjörlega troðfullt í KNH höllinni, enda kalt úti og hlýtt inni.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira