Stela Herjólfi og sigla til Ibiza Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 22. nóvember 2014 09:00 Skjöldur og Djammmeistarinn ræna Herjólfi og ætla að halda partíinu gangandi. „
Skjöldur er á leið heim af Þjóðhátíð þegar hann kynnist djammmeistaranum goðsagnakennda, sem leikinn er af Ólafíu Hrönn. Hún telur hann á að stela Herjólfi, sigla til Ibiza og halda partíinu gangandi,“ segir Steindi, en tökum á sjónvarpsþættinum Hreinum Skildi er nýlokið. „Skjöldur er svo áhrifagjarn svo það var auðvelt fyrir djammmeistarann að fá hann til að ræna Herjólfi. Þau fóru létt með það, bara einn skipstjóri, leikinn af Þresti Leó, og tveir sjoppustarfsmenn sem þurfti að ná stjórn á,“ segir Steindi. Í fyrstu er ferðin ekkert nema stuð og brjálað partí, en áður en þau vita af hefur olían klárast og síðustu Koskenkorva-droparnir búnir. „Atburðarásin snýst við og breytist í einhvers konar lost/survivor-stemningu og…“ segir Steindi. Straumurinn ber djammarana svo til Sómalíu, en meiru getur Steindi ekki ljóstrað upp um afdrif þeirra í bili. Hann segist nokkuð viss um að þetta sé í fyrsta sinn í sjónvarpssögunni þar sem tekið er upp í Herjólfi í heila viku. „Við fórum í Herjólf klukkan ellefu á kvöldin, mynduðum yfir nóttina og sváfum á daginn. Eftir svoleiðis törn er gott að ná sé niður fyrir svefn á morgnana og fá sér einn bjór. Maður sat bara í morgunmat á hótelinu með ristað brauð og bjór,“ segir Steindi, og mælir jafnframt með þeirri blöndu. „Þetta er eins og jólamatur bara.“ Fyrsti þátturinn af Hreinum Skildi fer í loftið sunnudaginn 30. nóvember en þá verður Skjöldur háður U-hu límsniffi og neyðist til að taka 12 sporin hjá AA-samtökunum.
Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira