Innlent

KSÍ spyr um Þórsstúku

Bjarki Ármannsson skrifar
Stuðningsmenn knattspyrnufélagsins Þórs á góðri stundu.
Stuðningsmenn knattspyrnufélagsins Þórs á góðri stundu. Mynd/Vilhelm
Knattspyrnusamband Íslands vill að Akureyrarbær útbúi framkvæmdaáætlun vegna smíði þaks á stúku Þórsvallar.

Í framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar næstu þriggja ára er gert ráð fyrir að verja um 355 milljónum króna til uppbyggingar æskulýðs- og íþróttamála. Ekki er gert ráð fyrir Þórsstúku í þeirri áætlun.

Akureyrarbær hefur undanfarin ár varið rúmum þremur milljörðum króna til uppbyggingar knattspyrnustarfsemi. Má þar nefna yfirbyggðan gervigrasvöll í fullri stærð og gervigrasvöll á svæði KA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×