Bæjarstjóri verður að fara eftir samþykktum bæjarstjórnar Kópavogs Heimir Már Pétursson skrifar 20. janúar 2014 13:15 Oddviti Samfylkingarinnar segir að nú þegar sé hægt að kaupa 15 félagslegar íbúðir. Þá þurfi að drífa hönnun fjölbýlishúsa í hönnun og útboð.
Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að bæjarstjóra beri að vinna eftir samþykkt bæjarstjórnar um húsnæðismál frá því í síðustu viku. Nú þegar sé til heimild til kaupa á 15 félagslegum íbúðum og drífa þurfi hönnunarvinnu vegna tveggja fjölbýlishæusa af stað. Sérkennnileg pólitísk staða er komin upp í bæjarstjórn Kópavogs eftir að nýr meirihluti myndaðst á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag í síðustu viku um félagsleg húsnæðismál. Guðríður Arnardóttir oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn segir næstu skref að séu að reyna að fá Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðismanna til verka samkvæmt samþykktinni. „Honum ber náttúrlega að vinna að þessu máli samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar og mér heyrist á hans málflutningi að hann ætli ekki að ganga rösklega til verks,“ segir Guðríður. En hvað þarf að gera? „Í fyrsta lagi eru til peningar til að kaupa fimmtán félagslegar leiguíbúðir. Það þarf að setja starfsmenn í það að kíkja í kring um sig og fara að versla,“ segir Guðríður. Þá þurfi að finna þeim tveimur fjölbýlishúsum sem samþykkt var að byggja stað og hefja hönnunarvinnu og fara í útboð. „Og það sem mestu máli skiptir er að í millitíðinni þarf bæjarstjóri að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun til þess að við fáum formlega heimildir til þessara fjárútláta. Samhliða þarf hann að gera grein fyrir því að við ætlum að fá þessa fjármuni af lóðasölu sem kemur inn á árinu, þegar við úthlutum landi í Vatnsendahlíð og á Glaðheimalandinu,“ segir oddviti Samfylkingarinnar. Nánari útfærsla á fjárhagshlið tillögunnar verði væntanlega lögð fram á bæjarstjórnarfundi í næstu viku og ætti að vinnast í samstarfi við starfsmenn bæjarins. „Verkefnið í það heila mun kosta undir tveimur milljörðum. Þetta verða eitthvað í kring um 1,8 milljarðar. Ég gæti gert lauslega ráð fyrir því að hálfur milljarður að hálfur milljarður félli til á þessu ári og það þarf auðvitað að gera grein fyrir þeim hálfa milljarði með viðauka með fjárhagsáætlun. En restin mun falla til á næsta ári og það verður auðvitað bara unnið samhliða gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2015,“ segir Guðríður. Bæjarstjóri verði að fylgja samþykktum bæjarstjórnar enda séu þær leiðarljós hans sem framkvæmdastjóra bæjarins.Honum beri að framfylgja samþykktum bæjarstjórnar þótt hann sé persónulega ekki sammála þeim.Og þið munið fylgja því eftir á næsta bæjarstjórnarfundi og í bæjarráði, eða hvað? „Að minnsta kosti á næsta bæjarstjórnarfundi. Það verður að segjast eins og er að það er flóknara að fylgja því eftir í bæjarráði. Vegna þess að við erum ekki með meirihluta fyrir málinu inni í bæjarráðiþótt við séum með meirihluta fyrir málinu í bæjarstjórn. Það situr bara hluti bæjarfulltrúa í bæjarráði,“ segir Guðríður Arnardóttir.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira