Innlent

Máli Baldurs vísað frá

Jakob Bjarnar skrifar
Baldur Guðlaugsson í réttarsal.
Baldur Guðlaugsson í réttarsal.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, frá en hann var dæmdur í Hæstarétti í upphafi árs 2012 til tveggja ára fangelsisvistar vegna innherjasvika og brota í opinberu starfi.

Það er Ríkisútvarpið sem greinir frá þessu en Karl Axelsson, lögmaður Baldurs, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu og segir að þar með sé máli Baldurs lokið. Í nóvember ákvað mannréttindadómstóllinn að taka mál Geirs Haarde, fyrrverandi forstætisráðherra, til skoðunar en hann var dæmdur af Landsdómi og ákvað að vísa máli sínu áfram til mannréttindadómstólsins. Dómstóllinn sá fær tugi þúsunda mála til umfjöllunar á hverju ári og er flestum þeirra vísað frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×