Ísland með Makedóníu og Ítalíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júlí 2014 10:08 Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari íslenska landsliðsins. Vísir/Stefán
Ísland er í riðli með Makedóníu og Ítalíu í forkeppni HM kvenna sem fer fram í Danmörku í lok næsta árs. Dregið var í riðla í morgun en alls voru fjórtán lið í pottinum og var þeim skipt í fjóra riðla. Sigurvegari hvers riðils kemst í umspil fyrir lokakeppnina á næsta ári. Liðum er heimilt að koma sér saman um að spila alla leikina á einum ákveðnum stað og þá annað hvort í lok nóvember eða byrjun desember á þessu ári. Að öðrum kosti spila liðin heima og að heiman með reglulegu millibili í haust. Dregið verður í umspilið fyrir úrslitaleikinn í EM kvenna sem fer fram í Króatíu og Ungverjalandi í desember. Ljóst er að Ísland verður þar í neðri styrkleikaflokki ef liðið kemst áfram úr forkeppninni. Ísland og Makedónía spiluðu bæði síðast í lokakeppni stórmóts á EM í Serbíu árið 2012. Bæði lið töpuðu öllum sínum leikjum í riðlakeppninni en Ísland hafnaði í fimmtánda sæti keppninnar og Makedónía því sextánda. Besti árangur Makedóníu í lokakeppni stórmóts var sjöunda sætið á EM árið 2008 og sjöunda sætið á HM árið 1997. Flestir leikmenn liðsins leika með ZRK Metalurg í heimalandinu. Ítalía hefur einu sinni komist í lokakeppni stórmóts en það var á HM árið 2001. Þar hafnaði liðið í sextánda sæti.
Handbolti Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira