Mæðgur fjalla um íslensk kjarnakvendi Þórður Ingi Jónsson skrifar 27. nóvember 2014 09:30 Mæðgurnar Ólöf Rún og Hjördís Hugrún fjalla um jákvæðar fyrirmyndir. MYND/EVA LIND „
Þetta eru fimmtíu áhugaverðar íslenskar konur í forvitnilegum störfum í vísinda- og tæknigeiranum. Það hefði örugglega verið hægt að skrifa bók um mörg hundruð konur en þessar urðu fyrir valinu,“ segir Ólöf Rún Skúladóttir, sem gefið hefur út bókina Tækifærin ásamt dóttur sinni Hjördísi Hugrúnu Sigurðardóttur. Í bókinni eru viðtöl við fimmtíu íslenskar konur sem sinna áhugaverðum störfum víða um heim, meðal annars í San Francisco og Seattle, Reykjavík og Reyðarfirði, í Berlín og Stokkhólmi, Lúxemborg og á Ísafirði. „Þó að í þessari bók séu viðtöl við konur sem hafa farið í langskólanám í vísinda- og tæknigreinum, þá á hún í rauninni erindi til mun víðari hóps. Þetta snýst í rauninni um hvernig við látum draumana rætast, hvernig við náum þangað sem við viljum. Leiðin getur oft verið svolítið hlykkjótt,“ segir Ólöf Rún og bætir við að í viðtölunum komi fram mikilvægi þess að vera fylgin/n sér. „Að gefast ekki upp og stundum að spyrja aftur þótt einhver segi í fyrstu nei. Ef þú fylgir hlutunum eftir þá nærðu árangri, það þarf oft að vera útsjónarsamur og standa með sjálfum sér. Þetta á í rauninni bæði við um stráka og stelpur.“ Ólöf Rún segir það hafa gengið vel að fá viðmælendur til að samþykkja að koma í viðtöl en að því hafi ekki alltaf verið þannig háttað. „Margt hefur breyst á 20 til 25 árum. Þegar ég var að byrja í fréttamennsku þurfti oft að draga konur í viðtöl. Ekki var einungis því um að kenna að konur voru færri í framlínunni. Þær voru einnig mun hlédrægari. Það hefur breyst til betri vegar, það þarf að þora að taka af skarið.“
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Palli og Sigga í suðrænni afmælissveiflu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Fleiri fréttir Palli og Sigga í suðrænni afmælissveiflu Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Sjá meira