Helena: Þetta eru frábærar fréttir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2014 06:00 Helena Sverrisdóttir í leik með landsliðinu síðasta sumar. Vísir/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mun standa í stórræðum næsta vetur þegar liðið tekur þátt í undankeppni EM á ný eftir sex ára hlé. Stjórn FIBA Europe ákvað á fundi sínum í lok vikunnar að frá og með næsta hausti verði undankeppni EM kvenna spiluð innan keppnistímabilsins og í svokölluðum „landsliðsgluggum“ og fram undan eru því sögulegir leikir hjá kvennaliðinu. Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei spilað keppnisleik inni á miðju tímabili því leikir liðsins á NM, EM eða Smáþjóðaleikjum hafa verið fyrir eða eftir tímabilið. „Við stelpurnar erum búnar að bíða eftir að fá þetta tækifæri síðan síðast og því eru þetta frábærar fréttir,“ segir Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, sem spilar sem atvinnumaður í Póllandi í dag. En hvað finnst henni um þessa breytingu? „Persónulega finnst mér þetta frábær breyting. Þetta þýðir að við ,sem erum að spila sem atvinnumenn, fáum smá hlé frá okkar liðum og fáum að koma heim og spila með landsliðinu. Þetta þýðir einnig að við getum tekið meiri hvíld fyrir líkamann á sumrin. En þetta hefur líka kannski þau áhrif að við munum líklegast ekki getað teflt fram okkar sterkasta liði, þar sem ég sé ekki fyrir mér að NCAA eða skólarnir úti geti leyft leikmönnum að taka frí frá bæði skóla og leikjum,“ segir Helena. Undankeppni EM kvenna 2017 hefst í nóvember á næsta ári en tvö landsleikjahlé með tveimur leikjum hvort verða á næstu leiktíð, það fyrra 16. til 26. nóvember 2015 og það síðara 15. til 25. febrúar 2016.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira