Heilsa

Þekktu efnin í snyrtivörunum

Adda Soffía skrifar
visir/getty
Húðin dregur til sín allt að sextíu prósent af því sem borið er á hana. Flestar konur, og karlar, nota fjöldann allan af snyrtivörum daglega. Húðin er hreinsuð og á hana eru borin krem. Því næst tekur við farði, púður, kinnalitur, maskari, blýantur og varalitur. Allar þessar vörur innihalda fjöldann allan af efnum sem yfirleitt þarf orðabók til þess að skilja. Það er sífellt verið að rannsaka þessi efni og niðurstöðurnar geta verið misjafnar og þeim ber ekki alltaf saman. Efni með flókin nöfn þurfa ekki alltaf að vera hættuleg og snyrtivörur sem merktar eru „natural“ eru það oft ekki. Úrval af náttúrulegum og lífrænum snyrtivörum verður þó sífellt betra og eru þær snyrtivörur yfirleitt lausar við skaðleg efni. Gott er að hafa í huga að hafa þær snyrtivörur, sem þú þværð ekki af eða liggja lengi á líkamanum, sem hreinastar svo sem húðmjólk, farða og varalit.

Tocopherol

Betur þekkt sem E-vítamín og er því fituleysanlegt. Er andoxandi og rakagefandi ásamt því að vera rotvarnarefni. Vinnur gegn öldrun húðarinnar og styrkir collagen- og elastín-framleiðslu húðarinnar. Getur valdið kláða, en er yfirleitt hvorki ofnæmisvaldandi né hættulegt.

Formaldehyde

Betur þekkt sem formalín. Er upprunalega litlaust gas, en er í vökvaformi í snyrtivörum. Langalgengast í naglalakki og naglaherði, en finnst einnig í sjampói, vörum til þess að slétta hár eins og Brazilian blowout. Var talið hættulaust, en ef það er í vöru sem inniheldur triethanolamine (TEA), diethanolamine (DEA), eða monoethanolamine (MEA) getur það valdið ertingu í húð. Nokkrar rannsóknir sýna fram á að efnið geti verið krabbameinsvaldandi.

Benzones

Sólarvörn sem ver gegn UV-geislum. Viðheldur einnig lit og ilmi í snyrtivörum. Finnst í flestum sólarkremum og í farða, dagkremi og primer sem innihalda sólarvörn. Efnið hefur verið mjög umdeilt þar sem það brotnar niður þegar það kemst í snertingu við sólarljós, smýgur inn í húðina og situr eftir þar. Er talið ofnæmisvaldandi og ekki ráðlagt fyrir exemsjúklinga.

Alcohols (Cetyl alcohol, Stearyl Alcohol, Ceteareth 20)

Má ekki rugla saman við etanól eða própanól, sem er þurrkandi. Notað sem bindiefni til þess að blanda saman vatni og olíu og virkar einnig mýkjandi. Er algengast í hárnæringu og djúpnæringu. Í dag er það unnið úr kókosolíu eða pálmafeiti, en áður fyrr var það unnið úr sæði hvala.

Glycerols

(Glyceryl Oleate, Glyceryl Stearate, Glyceryl Cocoate)

Virkar sem bindiefni eða þeyta í kremum og bindur raka í húðinni. Er sykra sem er oftast unnin úr plöntum, eins og til dæmis aloe vera-plöntunni. Það eina sem ber að varast við þessa sykru er að nota of mikið af henni, því vegna mjög svo rakabindandi eiginleika þá getur of stór skammtur haft þveröfug áhrif.

Paraben

Ein umdeildustu innihaldsefni í snyrtivörum fyrr og síðar. Paraben eru rotvarnarefni og finnast meðal annars í jarðarberjum og bláberjum. Fjöldi rannsókna hefur verið gerð á efnunum og eru niðurstöðurnar misjafnar. Efnin eru talin krabbameinsvaldandi en þau hafa fundist í brjóstakrabbameinsæxli og voru lengi tengd við notkun svitalyktareyðis. Aðrir vilja meina að efnin séu skaðlaus þeim sem ekki hafa aðra húðsjúkdóma eða hafa ofnæmi fyrir þeim. Það er talið að eftir því sem fleiri paraben-efni eru saman í einni vöru þeim mun skaðlegri séu þau.

Þungmálmar

Þungmálmar eins og blý (e. lead), kvikasilfur (e. mercury), arsenik og króm (e. chromium) eru mjög algeng í varalitum og glossi, en þeir eru taldir mjög krabbameinsvaldandi. Ekki virðist vera samasemmerki á milli hvort varan er dýr eða ekki. Misjafnt er eftir merkjum hversu mikið magnið er og hve margar tegundir eru í hverri vöru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×