Kvenfangar í óvissu Viktoría Hermannsdóttir skrifar 15. október 2014 07:00 Hugsanlega verður fangelsinu í Kópavogi lokað fyrr en áætlað var.
FangelsismálKvennafangelsinu í Kópavogi verður væntanlega lokað næsta sumar en áætlað er að nýtt fangelsi á Hólmsheiði verði tilbúið um þarnæstu áramót. Þar verður sérstök kvennadeild. Þá verður í nokkra mánuði ekkert eiginlegt kvennafangelsi. „Það er niðurskurðarkrafa á okkur í ár eins og fyrri ár og við erum að velta því fyrir okkur hvernig við eigum að takast á við það. Einn möguleikinn er að loka fangelsinu í Kópavogi fyrr,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. Áætlað er að nýtt fangelsi á Hólmsheiði verði tilbúið um þarnæstu áramót og getur því skapast sú staða að ekkert eiginlegt fangelsi fyrir konur verði um nokkurra mánaða skeið. Páll segir það ekki koma að sök þar sem kvenfangar séu nú í miklum minnihluta í fangelsinu. Einungis ein kona afplánar núna en samtals afplána nú þrír kvenfangar dóm í íslenskum fangelsum auk þess sem nokkrar eru á Vernd. Tvær afplána á Kvíabryggju.fangelsismálastjóri Páll Winkel segir að nýtt fangelsi á Hólmsheiði verði tilbúið um þarnæstu áramót.Páll segir það hafa gengið vel að hafa kven- og karlfanga saman og engin meiriháttar vandamál komið upp. „Það hefur gengið merkilega vel. Starfsfólk hefur tekið þessu með opnum huga og er mjög vakandi fyrir því að þetta sé flókið verkefni,“ segir hann. Lengi hefur verið ljóst að aðstaða fyrir kvenfanga á Íslandi er hvergi nærri nógu góð. Fangelsið í Kópavogi er talið óhentugt, sérstaklega konum sem afplána lengri dóma. Fangelsið á Hólmsheiði verður með sérstaka kvennadeild þar sem kvenfangar eru aðskildir frá karlföngum. „Þar er sérstök deild fyrir konur sem afplána lengri dóma þar sem þær eru aðskildar frá öðrum föngum og aðbúnaður þeirra tekur mið af því að það sé hægt að afplána til lengri tíma. Aðstaða þeirra verður fullnægjandi og okkur til sóma. Þar verður ein átta manna deild rekin sérstaklega fyrir konur en ef þeim fjölgar þá verður fangelsið hannað þannig að það er hægt að taka aðra deild fyrir átta konur,“ segir Páll en hafa kvenfangar verið frá engum og upp í sextán.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Fleiri fréttir „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Sjá meira