Innlent

Stressuðum miðaldra konum hættara en öðrum við að fá Alzheimer

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Samhengi milli streitu og Alzheimers var enn greinilegra þegar konurnar höfðu verið stressaðar um langt skeið.
Samhengi milli streitu og Alzheimers var enn greinilegra þegar konurnar höfðu verið stressaðar um langt skeið. NORDICPHOTOS/GETTY
Miðaldra konur sem eru sérstaklega móttækilegar fyrir streitu eru í meiri hættu á að fá vitglöp síðar á ævinni, einkum Alzheimer, heldur en aðrar konur. Þetta eru niðurstöður rannsóknar vísindamanna við heilbrigðisvísindadeild Gautaborgarháskóla.

Rannsóknin hófst árið 1968 og náði til 800 kvenna á aldrinum 38 til 54 ára. Fylgst var með konunum með ákveðnu árabili um 38 ára skeið. Í lok rannsóknarinnar kom í ljós að konur, sem varð auðveldlega órótt, fengu oftar Alzheimer en aðrar. Samhengið var enn greinilegra ef konurnar höfðu verið stressaðar um langt skeið. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar höfðu 153 kvennanna fengið vitglöp fjörutíu árum eftir að rannsóknin hófst, þar af voru 104 með Alzheimer. Greint er frá niðurstöðum rannsóknarinnar í vísindaritinu Neurology 1. október síðastliðinn.

Á fréttavef Aftonbladet er haft eftir einum vísindamannanna, Lenu Johansson, að ekki fái allir stressaðir Alzheimer en hafi maður verið stressaður um langt skeið sé ástæða til að staldra við, hugsa málin og breyta ef til vill um lífsstíl.

Rannsóknin í Gautaborg náði aðeins til kvenna en Johansson segir enga ástæðu til að ætla að þessu sé öfugt farið hjá körlum. Enn sé þó ekkert vitað um það.

Önnur rannsókn sem gerð var við heilbrigðisvísindasvið Gautaborgarháskóla leiddi hins vegar í ljós að karlar sem eru undir stöðugu álagi séu í talsvert meiri hættu en þeir sem ekki eru stressaðir að fá sykursýki tvö. Þátttakendur í rannsókninni voru 7.500 karlar í Gautaborg og var fylgst með þeim í 35 ár.

Nokkur ráð til að draga úr streitu

Sóley Dröfn Davíðsdóttir, sálfræðingur og forstjóri Kvíðameðferðarstöðvarinnar, segir gott að velta því fyrir sér hvað það er sem valdi streitunni og hvort maður geti haft áhrif á aðstæðurnar. Hér á eftir fara nokkur ráð Sóleyjar:

Streituvaldar kortlagðir

Fólk verður stressað þegar það stendur frammi fyrir aðstæðum sem það upplifir að það ráði ekki við. Veltu því fyrir þér hvað það er sem er að stressa þig. Ert þú í erfiðum aðstæðum, t.d. að ganga í gegnum skilnað, veikindi nákomins ættingja eða breytingar á vinnustað? Eða stafar streitan af því að þú stendur frammi fyrir of mörgum verkefnum? Ertu með of marga bolta á lofti? Þekkt er að daglegt amstur valdi enn meiri streitu en stórviðburðir í lífinu. Eða tengist streitan þeim kröfum sem þú gerir til þín, þínu eigin hugarfari? Ert þú stressaðri en flestir myndu vera í þessum sömu aðstæðum? Hugleiddu hvort um sé að ræða ytri eða innri streituvalda hjá þér, eða blöndu af hvoru tveggja.

Dregið úr ytri streituvöldum

Getur þú haft áhrif á aðstæður þínar? Fækkað verkefnum, orðið betri í að setja vinnumörk þannig að verkefnum þínum fækki? Getur þú komið einhverjum verkefnum yfir á aðra? Getur þú í einhverjum tilvikum komið þér úr þeim aðstæðum sem valda þér streitu? Eða einfaldað líf þitt með einhverjum hætti? Fækkað áreitum, t.d. slökkt oftar á símanum og tölvupóstinum? Ef þú stendur frammi fyrir aðstæðum sem þú getur haft lítil áhrif á, eins og veikindum ættingja, getur þú náð betur að sætta þig við aðstæður eins og þær eru? Hugsað að „þetta er svona núna“, í stað þess að hugsa um hvernig þú vildir að allt væri? Getur þú lagt betri rækt við þig, t.d. tileinkað þér slökun, hugleiðslu og sett fleiri skemmtilegar athafnir á dagskrá? Þarft þú að æfa þig í að slæpast og sóa tíma?

Dregið úr innri streituvöldum

Ert þú stressaðri en flestir myndu vera í þessum aðstæðum? Getur verið að þú aukir á streituna með neikvæðum hugsunum um að þú ráðir ekki við aðstæður, þótt raunin sé önnur? Ert þú að ofmeta líkur á að eitthvað slæmt gerist og vanmeta getu þína til að fást við aðstæður? Lærðu að endurmeta þessar hugsanir. Veltu því einnig fyrir þér hvort þú gerir of miklar kröfur til þín. Getur þú dregið úr þeim kröfum? Æft þig að gera hlutina til hálfs eða kannski 70% í stað 100%? Myndu himinn og jörð farast dragir þú úr frammistöðu þinni eða gerðir smávægileg mistök af og til viljandi? Ég hvet þig til að prófa, en það gæti verið mun skemmtilegra líf!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×