Hárið orðið að listaverki Gunnar Leó Pálsson skrifar 24. júlí 2014 10:30 Hrafnkell Örn Guðjónsson er ánægður með listaverkið. Mynd/Esther Þorvalds „
Pabbi afhenti mér listaverkið fyrir skömmu en ég hef ekki hugmynd um hvað hann var lengi að búa þetta til,“ segir trommuleikarinn Hrafnkell Örn Guðjónsson, en hann fékk afhent trélistaverk frá föður sínum fyrir skömmu. Um er að ræða skúlptúr úr tré sem gerður er eftir tólf ára gamalli hárgreiðslu Hrafnkels. „Fyrir tólf árum bað pabbi mig um að sitja fyrir á mynd en tók svo bara mynd af hárinu mínu. Fyrir skömmu gaf hann mér svo listaverkið og hangir það uppi á vegg hjá mér,“ segir Hrafnkell Örn. Faðir hans, Guðjón Ketilsson var iðinn á árum áður við að búa til alls skyns skúlptúra úr tré þar sem hár er fyrirmyndin.Sideshow Bob og Hrafnkeli Erni eru stundum ruglað saman á mannamótum.Vísir/GettyHrafnkell Örn er þó með talsvert meira hár í dag og hefur fengið talsverða athygli fyrir einstaka hárgreiðslu. Honum hefur verið líkt við knattspyrnukappann David Luiz og glæpamanninn Sideshow Bob úr Simpsons. „Ég hef fengið að heyra það sérstaklega mikið að ég og Simpson-gaurinn séum líkir,“ segir Hrafnkell Örn og hlær. Hann er með mikið hár í dag og stefnir ekki á fara í klippingu á næstunni. „Ég hef ekki farið í klippingu í nokkur ár og er ekkert á leiðinni í klippingu á næstunni.“ Hrafnkell Örn hefur í nógu að snúast þessa dagana, ásamt því að vera spila með hljómsveitinni sinni Agent Fresco er hann einnig að spila með Emmsjé Gauta, Úlfi Úlfi, Young Karin, Steinari og Sign. „Það er gott að vera með mikið hár þegar mann langar til að slamma á bak við settið.“
Mest lesið Löggan sem gerðist leikari á miðjum aldri Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Tónlist Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Löggan sem gerðist leikari á miðjum aldri Á loks réttinn að öllum plötunum sínum „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Sjá meira