„Maðurinn ekki lengur bundinn af efnislegum veruleika" Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 3. janúar 2014 20:00
Bylting er yfirvofandi í framleiðsluháttum mannsins. Gríðarlegar framfarir hafa orðið í þrívíddarskönnun og prentun og er þessi nýstárlega tækni nú á allra færi. Bylting er yfirvofandi í framleiðsluháttum mannsins. Gríðarlegar framfarir hafa orðið í þrívíddarskönnun og prentun og nú er þessi nýstárlega tækni á allra færi. Kjartan Hreinn Njálsson fréttamaður kynnti sér málið og fékk að stíga inn í þrívíddarskanna. Þrívíddarprentun boðar byltingu í framleiðsluháttum, þar sem framleiðslumagnið skiptir ekki máli og fjöldaframleiðslan sem slík er ekki lengur á vegum stórfyrirtækja eða stjórnvalda, heldur fólksins. Árið sem nú er gengið í garð verður stórt ár í sögu þrívíddartækni. Þessi nýjung verður brátt ódýrari og aðgengileg.Tólf öflugar myndavélar taka sjötíu ljósmyndir sem síðar verða að þrívíðri ljósmynd.MYND/FRÉTTASTOFASjálf prentunin er þó aðeins önnur hliðin á peningnum. Þrívíddarskönnun er sjálf forsenda þess að tilraunin heppnist. Með henni er hægt að endurgera tiltekin hlut eins oft og þörf er á. Í raun er þessi tækni ekki takmörkum háð og hefur víðtæka skírskotun í menningarlegu og félagsfræðilegu samhengi sem og í heilbrigðisgeiranum. Mark Florquin er heilmyndasmiður og einblínir á þrívíddarskönnun fyrir leikjaframleiðendur og tískuhús vítt og breitt um heiminn. Hann er sannfærður um að þessi tækni muni á endanum snerta alla fleti daglegs lífs. Eins og svo oft er með framandi og nýstárlega tækni þá eru möguleikarnir nær ótakmarkaðir. Við erum oft örlítið hegómafull þegar tækni sem þessi er annars vegar, því fékk fréttamaður að stíga inn í þrívíddarskanna Florquins. „Það er hægt að skanna allt. Það þarf bara að nota mismunandi skanna fyrir mismunandi aðstæður og mismunandi hluti,“ segir Mark. „Það er hægt að sýndargera heiminn sem við búum í.“„Allt er sýndarveruleiki og allir geta upplifað sinn eigin heim eins og þeir vilja.“MYND/FRÉTTASTOFA„Maður þarf ekki að safna birgðum heldur er hægt að framleiða eftir þörfum, í hvaða efni sem maður vill, sem er í rauninni umhverfisleg bylting. Maður er ekki lengur bundinn við efnislegan veruleika. Allt er sýndarveruleiki og allir geta upplifað sinn eigin heim eins og þeir vilja.“ Tólf öflugar myndavélar taka sjötíu ljósmyndir sem síðar verða að þrívíðri ljósmynd sem hægt að prenta. Fígúran sem fréttamaður fékk er úr sandsteini, meitluð og máluð í þrívíddarprentara. Hin mikla bylting sem felst í þessari tækni er sú að möguleikar til að breyta eða fínstilla tiltekna vöru verða ótakmarkaðir. Það þarf ekki nýja verksmiðju. Aðeins fínstillingar í hugbúnaði. Sköpunargleði einstaklingsins tekur þar með við af gæðastjórnun fjöldaframleiðslunnar og gerræði einsleikans.Ranald með fígúruna.MYND/FRÉTTASTOFA„Skönnunartæknin hefur nú náð prenttækninni,“ segir Ranald Haig, sölustjóri hjá ProNor. „Við höfum getað prentað svona í rúm tuttugu ár, en það hefur ekki verið hægt að skanna í lit og skapa rétta styttu fyrr en núna.“Sp. blm. Því ætti venjulegur neytandi að kæra sig um þrívíddarskönnun?„Hvort viltu heldur hafa mynd af fjölskyldunni á arinhillunni eða módel?“
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Safna fyrir Steinunni sem lést við barnsburð á Landspítalanum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Lést við fæðingu sonar síns á Landspítalanum Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Sjá meira