Safnar gjaldeyri í stað þess að lækka stýrivexti 12. júní 2014 08:00 Már Guðmundsson kynnti í gær ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum. Þeim hefur ekki verið breytt á síðustu þrettán fundum. Vísir/GVA „
Meginatriðið er að Seðlabankinn er að nýta gjaldeyrisinnflæði sumarsins til að styrkja gjaldeyrisforðann. Ákvörðunin gerir það að verkum að krónan verður veikari en ella og þá myndast ekki jafn mikið svigrúm til að hafa stýrivexti lægri vegna þess að það kemur niður á verðbólgunni,“ segir Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, um ákvörðun Seðlabankans um að hefja regluleg gjaldeyriskaup á ný. Seðlabankinn ætlar að kaupa þrjár milljónir evra, rúmar 465 milljónir króna, á gjaldeyrismarkaði í hverri viku út september. * Bankinn hætti reglulegum gjaldeyriskaupum í árslok 2012. Hann hefur þó frá maímánuði 2013 keypt 288 milljónir evra, að jafnvirði 45,1 milljarði króna, í því skyni að draga úr sveiflum á gengi krónunnar. Á þessu ári hefur bankinn keypt rúmar níu milljónir evra á viku að meðaltali, eða þrefalt meira en það sem stefnt er að með reglulegu kaupunum. „Seðlabankinn er nú að setja gjaldeyriskaupin aftur í fastan farveg en bankinn vill augljóslega ekki sjá krónuna sterkari í bráð. Núna þegar verðbólgumarkmiðið er í höfn finnst mér eðlilegt að bankinn sé að leggja áherslu á að byggja upp gjaldeyrisvarasjóðinn. Hann þarf að vera tiltölulega mikið stærri þegar kemur að afnámi gjaldeyrishafta, ef hann á að nýtast til að verja stöðugleikann á gjaldeyrismarkaði,“ segir Ingólfur. Már Guðmundsson seðlabankastjóri gerði grein fyrir ákvörðuninni á fundi bankans í gær þar sem ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum var kynnt. Már sagði svo geta farið að bankinn keypti einnig gjaldeyri í óreglulegum kaupum á næstu mánuðum. „Markmiðið með þessum gjaldeyriskaupum er ekki það í sjálfu sér að hafa áhrif á gengi krónunnar, þó þetta hafi það kannski með einhverjum beinum eða óbeinum hætti. [...] Við höfum tvö verkefni. Annars vegar halda verðbólgunni við markmið og hins vegar viljum við yfir tíma safna gjaldeyri til þess að breyta okkar gjaldeyrisforða úr skuld við erlenda aðila yfir í skuld við innlenda aðila,“ sagði Már. Hann sagði gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans á síðastliðnum tólf mánuðum hafa stuðlað að auknum stöðugleika krónunnar. Már sagði gjaldeyriskaupin ekki koma í stað vaxtahækkana, þegar Hafsteinn Hauksson, sérfræðingur hjá greiningardeild Arion Banka, spurði hvort svo gæti farið. „Við viljum frekar nota svigrúmið til að safna gjaldeyri heldur en að lækka vexti. Það er líka í ljósi stöðunnar varðandi horfur um að viðskiptaafgangurinn sé að hverfa,“ sagði Már.
Mest lesið Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Einkenni gervigreindar-kvíða og góð ráð Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Sjá meira