Hjónin á Eiði Vestlendingar ársins Samúel Karl Ólason skrifar 3. janúar 2014 20:44 Bjarni og Guðrún Lilja að Eiði eru Vestlendingar ársins 2013. Mynd/Skessuhorn/hlh
Skessuhorn hefur valið hjónin Bjarna Sigurbjörnsson og Guðrúnu Lilju Arnórsdóttur Vestlendinga ársins 2013. Skessuhorn hefur staðið fyrir vali á Vestlendingi ársins í fimmtán ár og að þessu sinni sendu lesendur blaðsins inn fjölmargar ábendingar. Alls voru 22 tilnefndir. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Skessuhorni að þetta sé í fyrsta sinn sem hjón hljóta titilinn. Í tilkynningunni er fjallað um þau hjón. Öflugir útverðir byggðar„Hjónin og bændurnir Bjarni og Guðrún Lilja að Eiði komu oft fyrir í umfjöllun fjölmiðla á liðnu ári. Ekki hefur farið framhjá lesendum Skessuhorns hversu umfangsmikill síldardauðinn í Kolgrafafirði var og áhrif hans þegar um 52 þúsund tonn af síld drápust í firðinum. Síldina rak ýmist í bunkum á fjörur við Eiði eða sökk til botns til rotnunar með neikvæðum afleiðingum á lífríkið. Útlit var fyrir mikla umhverfismengun og var grútarváin allt um lykjandi og daunninn eftir því. Hamförunum tók heimilisfólkið að Eiði hins vegar af mikilli stillingu svo eftir var tekið í samfélaginu. Bændur eru öðrum þræði útverðir byggðar í landinu gagnvart heimi náttúrunnar. Má af reynslu síldardauðans í Kolgrafafirði sjá að hjónin að Eiði valda því hlutverki einkar vel og eru að mati blaðsins og lesenda þess öðrum til fyrirmyndar. Skessuhorn óskar þeim hjónum innilega til hamingju með vegsemdina.“ Aðrir sem fengu þrjár tilnefningar eða fleiri eru:Dr. Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri fyrir verðmæta skráningu heimilda um tækni og störf til sveita. Garðar Stefánsson og Sören Rosenkilde stofnendur Norðursalts á Reykhólum. Gísli Ólafsson ferðaþjónn í Grundarfirði. Guðrún Haraldsdóttir gangbrautavörður í Borgarnesi. Kristín Gísladóttir og Sigrún Katrín Halldórsdóttir í Borgarnesi fyrir vitundarvakningu gegn einelti. Ingólfur Árnason forstjóri Skagans á Akranesi fyrir uppbyggingu atvinnulífs. Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi fyrir ríka þjónustulund. Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA fyrir störf að hagsmunamálum launþega. Þór Magnússon á Gufuskálum fyrir uppbyggingu í ferðaþjónustu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira