Göngutúrar í tísku Gunnar Leó Pálsson skrifar 9. maí 2014 09:30 Einar Skúlason hefur sent frá sér bókina Átta gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur. Vísir/gva „
Upphaf bókarinnar má í raun rekja til gönguhópsins, sem kallast Vesen og vergangur sem ég stofnaði haustið 2011,“ segir stjórnmálafræðingurinn og göngugarpurinn Einar Skúlason, en hann hefur sent frá sér bókina Átta gönguleiðir í nágrenni við Reykjavík. „Ég er búinn að vera undirbúa hana í um tvö og hálft ár en síðasta eina og hálfa árið hef ég verið að skrifa í frístundum, í stað þess að horfa á sjónvarpið.“ Bókin er ákaflega vönduð og útskýrir hverja gönguleið vel, ásamt því að segja frá skemmtilegum staðreyndum frá hverjum stað fyrir sig. „Ég hef gaman af því að ganga frá einum stað til annars, ég reyni líka að grafa upp sögulegan fróðleik í tengslum við hverja gönguleið. Mér þótti mikilvægt að hafa leiðir sem eru ekki of langt að heiman,“ segir Einar. Hann segir að sögurnar geti komið úr allt frá Íslendingasögunum og fram til dagsins í dag.Göngufólk fer yfir Súlnaá rétt fyrir ofan þar sem hún rennur í Öxará.Hann segist þekkja hverja gönguleið bókarinnar vel og að þær séu allar dagleiðir eða frá 13 kílómetrum upp í 28 kílómetra leiðir. „Þetta eru ekki mjög erfiðar leiðir og sérstaklega ekki á sumrin. Það er þó hækkun og gengið í ójöfnu, þannig að þú ferð ekkert bara beint upp úr sófanum,“ bætir Einar við léttur í lundu. Hann segir þó að menn þurfi að gera varúðarráðstafanir þegar gengið er að vetri til. Göngutúrar hafa alltaf verið vinsælir en eru þeir að verða vinsælli með tímanum? „Eftir hrun varð töluverð breyting á göngumenningu þjóðarinnar og þá fór fólk að ganga meira allt árið en ekki bara á sumrin.“Leiðin Leggjabrjótur. Svartagil á Þingvöllum - Botnsdalur í Hvalfirði.Eins og áður hefur komið fram starfrækir Einar gönguhóp og segir hann aðsóknina í hópinn vera mjög mikla. „Hópurinn er á Facebook og það eru um 3.500 meðlimir í hópnum. Þegar við förum í göngu þá panta ég yfirleitt fimmtíu eða sjötíu manna rútu og það er alltaf fullt og í raun komast ekki allir með sem vilja,“ útskýrir Einar. Hann segist ætla að ganga mikið í sumar. „Ég verð á Vestfjörðum og Austfjörðum í sumar. Ég ætla til dæmis að ganga á tónlistarhátíðina Bræðsluna sem haldin er á Borgarfirði eystri frá Seyðisfirði,“ segir Einar.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira