Margt verkafólk í vinnu þann 1. maí Snærós Sindradóttir skrifar 2. maí 2014 07:00 Maísólin okkar - Mikill fjöldi fólks kom saman til að hlusta á ræður á Ingólfstorgi í gær. Fólk brast jafnframt í baráttusöngva við undirspil Lúðrasveitar verkalýðsins. VÍSIR/Vilhelm
Flestar verslanir Kringlunnar og Smáralindar voru opnar í gær, á baráttudegi verkalýðsins. Nokkur dæmi voru jafnframt um að iðnaðarmenn væru við vinnu, meðal annars við byggingu hótels í miðbænum. Ólafía Björk Rafnsdóttir, formaður VR, segir það mjög miður hve margir félagsmenn VR voru við vinnu.Ólafía B. Rafnsdóttir„Í Kringlunni fyrir ári síðan höfðu verslunarrekendur val um hvort þeir hefðu opið eða ekki. Nú var tekin sú ákvörðun að allar verslanir yrðu að vera opnar.“ Hún segir vandann kannski frekar liggja hjá almenningi, „Þetta er krafa sem fólk býr til og það er greinilegt að fólk er að versla, það er ekki að sýna þá samstöðu að versla ekki þennan dag.“ Ólafía segir VR ekki hafa gripið til róttækra aðgerða til að sporna við þróuninni, „Við höfum ekki viljað hvetja fólk til að hunsa verslanir því þetta er okkar fólk sem er að vinna en við höfum hvatt verslunareigendur til að hafa lokað þennan dag.“ Ólafía segir að til greina komi að endurskoða þá stefnu félagsins. „Við höfum ekki tekið ákvörðun um að hvetja fólk til hunsunar en það má alveg íhuga það miðað við þennan mikla fjölda auglýsinga um opnunartíma þann 1. maí. Það er áberandi hve margar verslanir auglýsa afgreiðslutímana, meðal annars Bónus, sem hefur haft lokað síðastliðin ár.“ Tryggvi ArnarsonMikill hugur var í félagsmönnum VR í gær. „Það komu 1.200 manns í kaffi til okkar í anddyri Laugardalshallarinnar. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir komu og sáu sér fært að vera með okkur í kaffinu,“ segir Ólafía. Tryggvi Arnarson, varaformaður FIT, Félags iðn- og tæknigreina, er óánægður með að sumir iðnaðarmenn hafi þurft að vinna 1. maí „Þetta á að vera frídagur verkamanna en það er spurning hvort þetta sé farið að enda eins og frídagur verslunarmanna þar sem allir eru í fríi nema verslunarmenn," segir Tryggvi.Drífa SnædalDrífa Snædal, framkvæmdastýra Starfsgreinasambandsins, segir daginn mikilvægan fyrir verkafólk, „Þetta er frídagur og með hann skal farið sem slíkan. Það er greitt fyrir þennan dag eins og sunnudaga en það má velta því fyrir sér hvort það eigi að gera þetta að stórhátíðardegi. Þá er minni hvati hjá atvinnurekendum að hafa fólk í vinnu.“ Mörg þúsund manns gengu í kröfugöngu niður í miðbæ Reykjavíkur í gær. Um allt land safnaðist fólk saman til að krefjast hærri launa og betri kjara fyrir launþega.
Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Sjá meira