Við sem erum „heilbrigð“ fáum ákveðna forgjöf í vöggugjöf Marín Manda skrifar 2. maí 2014 12:00 Lína Rut Wilberg og Nói Gunnarsson.
Listakonan Lína Rut Wilberg sýnir verk sem hún vann með syni sínum, Nóa Gunnarssyni. „Allir foreldar þekkja það að elska myndirnar sem börnin okkar teikna. Fljótlega eftir að Nói byrjaði að teikna tók ég eftir að það var eitthvað sérstakt og skemmtilegt við fígúrurnar hans. Mig hefur lengi langað til nota þær í verkin mín og þegar að listahátíðin List án landamæra hafði samband við mig var það góð hvatning til að koma þeirri hugmynd í framkvæmd,“ segir Lína Rut Wilberg listakona þegar talið berst að listaverkasýningunni, Nói og ég, sem hún heldur ásamt níu ára syni sínum.Sýningin er sett upp í Duushúsi í Reykjanesbæ. Verkin eru blönduð barnslegu og óheftu handbragði Nóa og fínlegum vinnubrögðum Línu Rutar. „Það var einstök ánægja að taka þátt í þessu verkefni með Nóa. List án landamæra er skemmtilegt og verðugt verkefni og frábær liður í að stuðla að hugarfarsbreytingu um fatlaða og líf þeirra. Það er svo oft ríkjandi gleði, jákvæðni og hamingja í kringum Nóa og ég er viss um að ef fleiri hefðu sama viðhorf til lífsins og hann væri heimurinn enn betri,“ segir Lína Rut sem á tvo fatlaða syni. „Það má segja að við sem erum „heilbrigð“ fáum ákveðna forgjöf í vöggugjöf en það er hægt að lifa góðu og innihaldsríku lífi þrátt fyrir fötlun eða heftingu af einhverju tagi. Við eigum að umvefja fjölbreytileikann og fagna honum,“ segir Lína Rut, sem er hlakkar til að vinna meira með syni sínum í framtíðinni og eyða gæðastundum með honum. Hægt er að fylgjast nánar með verkunum í gegnum Facebook-síðuna, Lína Rut.Már Gunnarsson, eldri sonur Línu Rutar, frumflutti lag við opnun sýningarinnar og Villi Naglbítur samdi textann.
Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Sjá meira