Á forsíðu eins virtasta fitness-tímarits heims Gunnar Leó Pálsson skrifar 30. apríl 2014 08:00 Kristbjörg er að gera góða hluti í fitnessheiminum. Mynd/Chris Bailey „
Það er mikill heiður að fá að vera í svona stóru og virtu blaði,“ segir Kristbjörg Jónasdóttir, keppandi í módelfitness, en henni bregður fyrir á forsíðu nýjasta tölublaðs hins virta heilsutímarits Muscle & Fitness. Muscle & Fitness er eitt af þekktustu og virtustu fitness- og heilsutímaritum í heimi, ásamt tímaritinu Flex. Í blaðinu er sex blaðsíðna umfjöllun um Kristbjörgu. „Þeir höfðu samband og spurðu mig hvort þeir mættu hafa mynd af mér í dálki sem kallast Hottest Body of the Month, sem er í raun bara heilsíðumynd á síðustu blaðsíðu tímaritsins. Í kjölfarið hringdi svo ritstjórinn í mig og vildi gera meira úr þessu og taka viðtal við mig, ég hélt að þetta væri bara ein opna en þetta endaði sem sex blaðsíðna umfjöllun,“ útskýrir Kristbjörg. Hún er þó reyndar á sjö blaðsíðum því Kristbjörg er einnig í auglýsingu í blaðinu. Umfjöllun í slíku blaði er auðvitað mikil og góð auglýsing fyrir Kristbjörgu.Kristbjörg er hér uppi, hægra meginn á forsíðu tímaritsins.„Þar var verið að fara yfir ferilinn minn og þá var einnig farið yfir mín framtíðarplön og svo fórum við yfir nokkrar af æfingunum.“ Fjallað verður um hana í ágústblaði tímaritsins Flex í sumar. „Þetta er skemmtilegt tækifæri, ég held þó að það verði ekki jafn umfangsmikil umfjöllun.“ Kristbjörg eyðir nánast öllum sínum tíma í æfingar og keppnir. „Ég er ekki atvinnumaður því ég er ekki með þetta „pro-card“ en þetta er samt í rauninni atvinnan mín því ég ferðast mikið með styrktaraðilum mínum,“ segir Kristbjörg, sem var að ljúka við mót í Leicester og lenti þar í öðru sæti. Kærasti Kristbjargar er knattspyrnukappinn Aron Einar Gunnarsson, stýrir þú eldamennskunni á ykkar heilsuríka heimili? „Hann greyið fær ekkert að borða nema eitthvað mjög hollt,“ segir Kristbjörg og hlær og bætir við: „Hann er duglegur að elda en fær samt voða litlu ráðið um hvað er í matinn.“
Mest lesið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Segir son sinn ekki hafa þurft að deyja Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira