Stórsveit Samma í mikið ferðalag Gunnar Leó Pálsson skrifar 23. apríl 2014 07:15 Samúel Jón Samúelsson Big Band heldur af stað í tónleikaferðalag um Evrópu. mynd/Golli „
Við höfum farið í tónleikaferðalag á hverju ári síðan árið 2008 en þetta er lengsta ferðalagið sem við höfum farið í,“ segir tónlistarmaðurinn Samúel Jón Samúelsson, sem leggur af stað í ferðalag um Evrópu undir lok vikunnar ásamt stórsveit sinni. Ferðalagið hefst þó á Gamla Gauknum í kvöld en svo fer sveitin til Sviss á föstudaginn og loks tekur við um það bil tveggja vikna langt ferðalag um Evrópu. Sveitin kemur fram á fjórtán tónleikum í heildina í fimm löndum; Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Tékklandi og Ungverjalandi. Sveitin ferðast um á tveggja hæða rútu sem er vel búin. „Á efri hæðinni eru kojur þannig að við getum sofið á meðan við ferðumst á nóttunni, þá vaknar maður alltaf í nýrri borg sem er frábært,“ bætir Sammi við. „Platan okkar 4 Hliðar er líka að koma út í Þýskalandi á næstu dögum á vegum útgáfufyrirtækisins Contemplate og því er kærkomið að fara út og spila,“ segir Sammi. Áður hafði fyrirtækið gefið út plötuna Helvítis Fokking Funk í Þýskalandi. Sammi segir ákaflega gaman að fara með sveitinni í tónleikaferð en meðlimirnir eru þrettán talsins. „Við vorum alltaf átján en þurftum að fækka meðlimum til þess að passa í rútuna.“Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 22.00. Nánar má lesa um ferðalagið hér.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira