Ungur á uppleið Baldvin Þormóðsson skrifar 12. apríl 2014 09:00 Grettir Valsson er frambærilegur leikari. mynd/jón páll eyjólfsson „
Ég átti fyrst ekki að vera í verkinu en leikstjóranum leist svo vel á mig þegar ég mætti og fór með textann að mér var bætt við,“ segir hinn tólf ára Grettir Valsson en hann leikur í sýningunni Dagbók Djazzsöngvarans þessa daganna. Verkið skrifaði faðir Grettis, Valur Freyr Einarsson en hann leikur einnig í sýningunni ásamt syni sínum og Kristbjörgu Kjeld. „Ég leik semsagt sjö ára strákinn Harald, en Haraldur er pabbi aðalhlutverksins sem heitir Ólafur og pabbi minn leikur hann,“ segir Grettir og bætir því við að það getur verið smá ruglingslegt að leika pabba, pabba síns. „Ég leik þá Harald í fortíðinni þegar hann er sjö ára,“ segir ungi leikarinn. „Fyrst átti pabbi minn, Valur, að fara með þær línurnar en ég fékk að koma í prufu og prófa að fara með þær og það gekk svo vel að ég fékk hlutverkið,“ segir Grettir sem er alls ekki óvanur leikari.Grettir og faðir hans, Valur.mynd/Jón Páll EyjólfssonFinnst gaman að leika „Mér finnst rosalega gaman að leika,“ segir Grettir sem hefur leikið í sýningum á borð við Oliver Twist, Allir synir mínir, Galdrakarlinn í Oz, Dýrin í Hálsaskógi og Mary Poppins. „Mér fannst skemmtilegast að leika í Mary Poppins,“ segir ungi leikarinn en hann lék stórt hlutverk í söngleiknum. „Ég lék Michael, þannig að ég var eiginlega á sviðinu allan tímann sem var mjög gaman.“ Leikstjóri Dagbókar Djazzsöngvarans er Jón Páll Eyjólfsson og finnst Grettir hann vera hinn fínasti leikstjóri. „Hann fer öðru vísi leiðir en hinir leikstjórarnir sem ég hef unnið með,“ segir Grettir. „Hann leyfir okkur stundum pínu að spinna og bætir við þeim hlutum sem honum líst vel þá,“ Aðspurður hvort að hann hafi verið stressaður fyrir frumsýningu verksins sem fór fram í gær segir Grettir vera miklu frekar spenntur en stressaður. „Af öllu sem ég geri finnst mér langskemmtilegast að leika.“
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira