Vestfirðingar verðlaunaðir Baldvin Þormóðsson skrifar 7. apríl 2014 10:00 Baldur Páll Hólmgeirsson. mynd/einkasafn „
Við erum fimm Vestfirðingar sem ákváðum að setja þetta á fót,“ segir leikstjórinn Baldur Páll Hólmgeirsson en hann er einn stofnenda kvikmyndafélagsins Glámu. „Við erum alveg héðan og þaðan af Vestfjörðum, einn frá Þingeyri, annar frá Tálknafirði og einn frá Ísafirði,“ segir leikstjórinn. „Þetta byrjaði allt þegar við ákváðum að gera stuttmynd á Vestfjörðum,“ segir Baldur Páll en sú mynd bar nafnið Gláma. „Hún fjallar um kokk sem er ráðinn á árshátíð á hóteli en þegar hann mætir á staðinn er ekki allt með felldu.“ Kvikmyndafélagið ákvað síðan að gera þríleik sjálfstæðra mynda sem áttu allar að gerast á gömlum hótelum á Vestfjörðum. „Seinni myndin gerist á Hótel Breiðavík og sú þriðja á Reykjanesi,“ segir Baldur Páll en myndirnar hafa fengið góðar viðtökur.Eyþór Jóvinsson leikstýrir stuttmyndinni Sker.mynd/einkasafnNýjasta mynd félagsins er stuttmyndin Sker en hún segir frá sannri sögu kajakræðara sem ferðast um Vestfirði á kajak. Myndin hefur vægast sagt fengið góðar viðtökur en hún er bókuð á stórar kvikmyndahátíðir á borð við Aspen Shortsfest, Tribeca Film Festival og stuttmyndahorn Cannes-hátíðarinnar. „Við erum búin að senda myndina um allan heim, þetta eru svona fyrstu svörin sem hafa dottið inn,“ segir Baldur Páll sem bætir því við að kvikmyndafélagið sé að leggja lokahönd á tvær heimildarmyndir sem verða tilbúnar í sumar. „Önnur fjallar um Fjallabræður og ferð þeirra til Ísafjarðar í fyrra,“ segir leikstjórinn. „Hin myndin fjallar um einleikjahátíðina Act Alone á Ísafirði,“ segir Baldur Páll en það virðist vera nóg um að vera hjá kvikmyndafélaginu Gláma.
Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Fleiri fréttir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein