Lífið

Aðrar stjörnur mættu taka hana til fyrirmyndar

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Emma Watson smekkleg á frumsýningu Noah á Spáni.
Emma Watson smekkleg á frumsýningu Noah á Spáni. Vísir/Getty


Leikkonan Emma Watson hefur verið tíður gestur á rauða dreglinum það sem af er þessu ári vegna bíómyndarinnar Noah, sem var fumsýnd á dögunum.

Watson þykir ekki slá feilnótu í fatavali og hefur hlotið hrós fyrir óaðfinnanlegt útlit undan­farið. Sjálf varar hún við óheilbriðgðum útlitskröfum kvikmyndaheimsins. 

„Ég vakna ekki svona á morgnana,“ skrifaði Watson á samskiptamiðilinn Twitter eftir frumsýningu Noah í New York á dögunum.

Glæsileg Watson á Óskarnum í ár.


Leikkonan hafði fengið mikið hrós fyrir fataval og útlit fyrr um kvöldið og ákvað að birta mynd af öllum förðunarvörunum sem þurfti til að fá hana til að líta vel út með ofangreindum skilaboðum til aðdáenda sinna. 

Í samtali við Guardian greinir Watson frá stöðugri baráttu sinni við útlitskröfurnar í Hollywood og segir mikilvægt að vera meðvitaður.

„Sem ung kona hefur þessi pressa áhrif á mig en í gegnum árin hef ég lært að takast á við þetta. Með sminki og fótósjopp getur tískuheimurinn endurspeglað óheilbrigt útlit. Ég er sjálf mjög spennt fyrir að eldast og hef miklu meiri áhuga á konum sem eru ekki fullkomnar. Þær höfða meira til mín.“

Watson á Elle - verðlaunahátíðinni í London fyrr á árinu.
Watson er að stimpla sig inn sem prýðis fyrirmynd, í tísku sem og á öðrum sviðum. 

Hún er með góðan stílista á sínum snærum enda bæði hár og förðun iðulega smekklega útfært þannig að aðrar stjörnur mættu taka sér Watson til fyrirmyndar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.