Lífið

Styrkja gott málefni

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hér sjáum við hóp ekkna í Dindingul sem Vinir Indlands styrkja. Þegar þær missa makann þá eru þær eignalausar og við styrkjum þessa hópa, þær framfleyta sér með því að búa til kerti. Hér sést glitta í kertaform en kertin eru meðal annars hér á landi hjá Vinum Indlands.
Hér sjáum við hóp ekkna í Dindingul sem Vinir Indlands styrkja. Þegar þær missa makann þá eru þær eignalausar og við styrkjum þessa hópa, þær framfleyta sér með því að búa til kerti. Hér sést glitta í kertaform en kertin eru meðal annars hér á landi hjá Vinum Indlands. mynd/John Amalraj
„Indverska kvikmyndahátíðin er einn af þáttunum í okkar starfsemi til að kynna indverska menningu á Íslandi og ef ágóði verður af henni mun hann renna til styrktar munaðarleysingjaheimilum á Indlandi sem styrkt eru gegnum Vini Indlands,“ segir Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir, einn stjórnarmaður í Vinum Indlands en samtökin standa fyrir indverskri kvikmyndahátíð með stuðningi sendiráðs Indlands hér á landi.

Hátíðin fer fram í Bíói Paradís dagana 8. apríl til 13. apríl. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún fór fyrst fram fyrir tveimur árum, árið 2012, og vakti þá mikla athygli. Hún var samvinnuverkefni Vina Indlands, Bíós Paradísar og Sendiráðs Indlands á Íslandi. Auk þess veitti sendiráð Íslands í Nýju-Delí mikilvæga aðstoð við undirbúning hátíðarinnar.

Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir
„Allur ágóðinn af hátíðinni rennur til heimila okkar í Indlandi. Við erum að styrkja þrjú heimili, eitt heimili fyrir munaðarlaus börn í borginni Erode í Suður-Indlandi, stúlknaheimili sem staðsett er í Pasum Kudil-héraði í Ramanatapuram og svo annað stúlknaheimili í Salem,“ segir Sveinbjörg Rósa.

Að þessu sinni verða kynntar til leiks fimm nýlegar kvikmyndir. Allt eru þetta gæðamyndir og ætla þeir aðilar sem standa að kvikmyndahátíðinni að gera enn betur en síðast. Þær myndir sem sýndar verða á hátíðinni eru Enskunámið eða English Vinglish, Sköpuð fyrir hvort annað, Rómeó og Júlía, A Million Dollar Fake og Ra.One.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.