Vinsælu 12:00 þættirnir byrjaðir á Popp tv 30. mars 2014 14:00 „
Þessir þættir hafa verið í gangi í Versló síðan árið 1996 þegar fyrsta 12:00-nefndin var stofnuð. Þeir hafa fyrst og fremst verið hugsaðir sem skemmti- og afþreyingarþættir fyrir Verslinga en eru nú á leiðinni í sjónvarp í fyrsta skipti,“ segir Nökkvi Fjalar Orrason, annar forsprakka 12:00 en þeir Egill Ploder Ottósson fara fyrir hópnum. „Þetta verða sex þættir á Popp tv en þeir verða samsafn af bestu sketsum og atriðum 12:00 skólaáranna 2012 til 2013 og 2013 til 2014. Við munum taka út allan einkahúmor sem bara Verslingar skilja og eftir standa þættir sem allir krakkar á menntaskóla- og grunnskólaaldri munu hafa gaman af.Lögin fengið athygliSketsarnir í þáttunum eru sjálfstæðir og allir frumsamdir og enda þættirnir á tónlistarmyndbandi með góðu grínívafi. Lárus Örn Arnarson semur öll lögin í þáttunum og er hann mjög efnilegur tónlistarmaður,“ segir Egill. Áhorf 12:00 á YouTube hefur verið ótrúlega gott og má nefna dæmi um tvö tónlistarmyndbönd sem hafa fengið um sextíuþúsund áhorfendur hvort um sig. „Við endum alla þættina á lagi og myndbandi við það. Við höfum fengið mjög mikla athygli út á lögin og höfum verið að spila víða undanfarið, til dæmis á Söngvakeppni Samfés um daginn og á árshátíðum grunnskóla. Þar kannast flestir við lögin okkar og öll þessi athygli hefur komið okkur á óvart,“ segir Nökkvi.Ótrúlegt YouTube áhorfMarkmið strákanna hefur verið að gera eitthvað meira úr starfi 12:00-nefndarinnar og þeir stefna hátt. Nú þegar er hægt að fá bæði geisladisk og app með efni sem nefndin hefur sent frá sér. Stöðin þeirra á YouTube er ein af þeim stöðvum með efni á íslensku sem hafa fengið hvað mest áhorf en um það bil 1,8 milljón sinnum hefur verið horft á efni frá þeim og vinsælasta lagið hefur verið spilað rúmlega 210 þúsund sinnum. Strákarnir hlakka mikið til að sjá hvernig þátturinn kemur út á Popp tv en fyrsti þátturinn verður sýndur í kvöld. „Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og við stefnum á að búa til meira svona efni í framtíðinni. Við ætlum að halda áfram að gera það sem við erum að gera núna nema með öðrum áherslum og formerkjum,“ segja þeir.Lokaþáttur í beinni„Lokaþáttur 12:00 verður sýndur beint á Popp tv þann 25. apríl næstkomandi. Hann verður sýndur á sama tíma í Versló og verður eflaust mikil spenna fyrir honum. Hann endar svo með einhverju svakalegu lokalagi fyrir sumarið. Lagið Sumartíminn var lokalagið í fyrra og viðbrögðin við því fóru fram úr öllum vonum.“ Að endingu vilja strákarnir skora á fleiri stelpur að taka þátt í starfi 12:00-nefndarinnar í framtíðinni en þeir hafa verið gagnrýndir fyrir að vera bara með stráka í nefndinni. „Það eru alltof fáar stelpur sem þora að mæta í inntökuviðtölin, þær eru kannski eitthvað smeykari við að gera sig að fífli en strákarnir.“
Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira