Hasarinn heldur áfram 30. mars 2014 10:00
Ný þáttarröð af bílaþættinum Á fullu gazi hefst 22. apríl. Fyrsta þáttarröðin var sýnd fyrr í vetur og vakti athygli fyrir fjörug og skemmtileg efnistök. Sem fyrr eru það Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og Finnur Thorlacius sem hafa umsjón með þáttunum sem verða með talsvert breyttu sniði frá síðustu þáttarröð. Minni áhersla verður lögð á keppni milli liða og meiri áhersla lögð á að kynna fjölbreytt úrval farartækja. Sigríður segir að upptökur hafi gengið vel þótt íslenska vetrarveðrið hafi ekki alltaf verið samvinnuþýtt. „Það er kannski ekki góð hugmynd að taka upp þátt um mótorsport í upphafi árs á Íslandi. Við þurftum stundum að bíða inni í bíl og horfa á vonda veðrið út um gluggann en þetta reddaðist nú samt allt saman. Helstu breytingar frá fyrri seríu eru þær að nú einblínum við á allar gerðir vélknúinna farartækja, ekki bara bíla. Engin faratæki verða okkur óviðkomandi.“ Flugáhugi Sigríðar fær svo sannarlega að njóta sín í þáttunum en meðal þess sem Sigríður prófar er fisflug og listflug. Ýmsir aðrir skemmtilegir dagskrárliðir eru í pípunum, að sögn Sigríðar, sem of snemmt er að segja frá. „Þó má nefna að Saga Garðarsdóttir leikkona og Guðlaugur Þór þingmaður snúa aftur en þau kepptu saman sem lið í rallíkeppni síðustu þáttaraðar eins og áhorfendur muna vel eftir. Saga er ekki með bílpróf og við ætlum að kenna henni á bíl í þessari þáttarröð. Guðlaugur Þór mun fara með hana í æfingaakstur en tók fram að líklega þyrfti hann róandi fyrir þann akstur. Ég hef fulla trú á því að hún geri einhvern massífan skandal.“ Einnig nefnir hún stórskemmtilega keppni þar sem hjólreiðamaður er látinn keppa við jeppa í keppni niður Úlfarsfellið. Einn liður þáttanna er heimsóknir Finns í erlendar bílaverksmiðjur. Í fyrsta þættinum heimsækir hann Porche-verksmiðjuna í Þýskalandi og prufukeyrir Macan-jepplinginn. Einnig verður fjallað um rafbílavæðinguna hérlendis og skoðað hvað er í boði fyrir íslenska neytendur. „Seinna í þáttaröðinni skoðum við rafbíl sem verið er að smíða í Háskóla Íslands. Bíllinn tekur þátt í keppni erlendis í sumar en þetta er þriðja árið í röð sem skólinn sendir bíl í þá keppni.“ Önnur nýjung sem boðið verður upp á er umfjöllun um neytendamál. „Þar munum við fjalla um fjölbreytt efni. Meðal annars munum við skoða nýja bíla og bera saman gæði þeirra. Það verður því svo sannarlega farið um víðan völl á nýju þáttaröðinni og ég get lofað stórskemmtilegum og fjörugum þáttum.“
Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira