Skaðabótamál vegna heilsutjóns þung og erfið Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 24. mars 2014 07:00 Skaðabótamál höfðuð gegn starfsmönnum á heilbrigðisstofnunum, þar á meðal Landspítala, fara í gegnum ríkislögmann. Ellefu slík mál voru höfðuð á árunum 2011-2012.
Þeir sjúklingar sem sækja bótarétt sinn til Sjúkratrygginga Íslands vegna vanrækslu eða mistaka við læknismeðferð, en fá synjun eða krefjast hærri bóta en þeir fá dæmdar, geta farið í skaðabótamál fyrir dómsstóli. Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður hjá Acta, hefur sinnt mörgum skaðabótamálum vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu og segir hún þessi mál vera afar erfið og þung í framkvæmd. „Eins og í venjulegu skaðabótamáli þarf að sanna að heilbrigðisstarfsmaður hafi af ásetningi eða gáleysi valdið tjóninu. Að hann beri sannarlega sök. Það getur verið mjög erfitt að sanna það,“ segir Þyrí.Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður hjá Acta, hefur tekið að sér mörg skaðabótamál vegna heilsutjóns við læknismeðferð.Hún segir að í hverju máli þurfi að fá hlutlausan matsmann og að mat hans sé grundvallar sönnunargagnið. „Íslenskt læknasamfélag er svo lítið og mikil tengsl innan samfélagsins þannig að það getur verið erfitt að finna hlutlausan sérfræðing. Það er helst að maður finni íslenskan lækni sem starfar erlendis til að meta málið og tengist viðkomandi heilbrigðisstarfsmönnum sem minnst.“ Öll skaðabótamál sem eru höfðuð vegna ábyrgðar starfsmanns heilbrigðisstofnunar fara í gegnum ríkislögmann enda eru þau höfðuð gegn íslenska ríkinu. Á árunum 2011-2012 voru 11 slík mál höfðuð á hendur íslenska ríkinu. Enn er fjórum málið ólokið árið 2014, sýkna var dæmd í fjórum tilfellum í héraðsdómi og í þremur tilfellum var bótaskylda dæmd. Þegar sök sannast á hendur heilbrigðisstarfsmanni, að hann hafi valdið sjúklingi tjóni, er bótaskylda á hendur íslenska ríkinu vegna vinnuveitandaábyrgðar.
Tengdar fréttir Heimasíða um andlát eiginmannsins Ástríður Pálsdóttir hefur opnað heimasíðu með öllum gögnum um sjúkralegu og andlát eiginmanns síns og um samskipti sín við starfsmenn heilbrigðiskerfisins vegna málsins. 24. mars 2014 07:00 Þriðjungur fær bætur vegna heilsutjóns Tilkynningum um heilsutjón vegna sjúkdómsmeðferðar hefur fjölgað mikið frá því ný lög tóku gildi árið 2001. Af 110 málum árið 2012 var 91 synjað eða vísað frá. 20. mars 2014 09:16 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Heimasíða um andlát eiginmannsins Ástríður Pálsdóttir hefur opnað heimasíðu með öllum gögnum um sjúkralegu og andlát eiginmanns síns og um samskipti sín við starfsmenn heilbrigðiskerfisins vegna málsins. 24. mars 2014 07:00
Þriðjungur fær bætur vegna heilsutjóns Tilkynningum um heilsutjón vegna sjúkdómsmeðferðar hefur fjölgað mikið frá því ný lög tóku gildi árið 2001. Af 110 málum árið 2012 var 91 synjað eða vísað frá. 20. mars 2014 09:16