Lífið

Vil fræða fólk en ekki hræða

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Jógakennarinn "Við göngum enn um skóginn og höldum áfram að elska öll dýrin, stór og smá,“ segir Marta.
Jógakennarinn "Við göngum enn um skóginn og höldum áfram að elska öll dýrin, stór og smá,“ segir Marta. Mynd/Friðrik Þór
Marta Eiríksdóttir jógakennari sem nú býr í Noregi hefur illilega fengið að kenna á hinum svokallaða Lyme-sjúkdómi. Ekki einu sinni heldur tvisvar. Sjúkdómurinn orsakast af biti skordýra og lýsir sér með liðverkjum, orkuleysi og fleiri óþægindum en með hjálp náttúrulækna er Marta um það bil að sigrast á afleiðingum bits sem hún varð fyrir sumarið 2012.

„Ég er farin að geta gengið án þess að haltra, það er lúxus sem ég er þakklát fyrir. Titringurinn í taugakerfinu er að minnka og ég er að verða sá orkubolti sem ég var áður. Við hjónin erum meira að segja byrjuð saman í ræktinni,“ lýsir Marta Eiríksdóttir jógakennari sem undanfarið ár hefur verið að kljást við Lyme-sjúkdóm eftir að norsk klakfluga stakk hana.

„Klakflugan stingur fast og sýgur blóð. Ég spurði heimamenn hvort hún bæri bakteríuna Borrelia sem orsakar Lyme-sjúkdóminn en þeir töldu svo ekki vera. Sjö til átta mánuðum síðar fór ég að fá einkennin og þekkti þau strax. Ég hafði fengið Lyme áður.“

Eina helgi síðasta sumar kveðst Marta hafa ákveðið að liggja í rúminu því hún hafi ekki getað gengið heldur bara skriðið um húsið. Oft hafi hún líka fundið fyrir flensueinkennum sem urðu þó aldrei meira.

„Þetta er ótrúlega skrítinn sjúkdómur sem leggst misjafnlega á fólk. Bakterían er lúmsk og ræðst á ónæmiskerfið og taugakerfið.“

Skógarmítill kræfur smitberi

Marta kveðst hafa heyrt fyrst um Lyme þegar hún bjó í Danmörku 1995-97.

„Þá var ég oft að labba í skóginum og dönsk kona varaði mig við því að komin væri einhver svakaleg padda í skóginn sem biti sig fasta og réðist inn í taugakerfið. Ég varð dálítið skelkuð. Þarna átti hún við skógarmítil sem bítur og sýgur blóð og er kræfur smitberi bakteríunnar. Talið að um 30% mítla beri hana með sér.

Nú býr Marta í bænum Nordfjordeid í Noregi sem hefur verið í byggð frá árinu 400 eða lengur og er á stærð við Grindavík. Þangað flutti hún með manni sínum, Friðriki Þór Friðrikssyni, sumarið 2011. Þau opnuðu jógasetrið YOGA med MARTA síðasta haust og kenna þar bæði auk þess sem Friðrik er rafvirki og orðinn einn af yfirmönnum hjá fyrirtækinu Eid Elektro. Norsku konurnar koma jafnvel með ferju yfir fjörðinn eða aka um klukkustund til að upplifa töfra jógaleikfiminnar, að sögn Mörtu.

Þau hjón ráku um skeið Púlsinn ævintýrahús í Sandgerði og síðar jógasetur í sama bæ. Ástæða þess að þau lokuðu jógasetrinu í janúar 2011 var lasleiki Mörtu sem lýsti sér meðal annars í liðverkjum, titringi í taugakerfi og orkuleysi.

„Ég fann að þrátt fyrir að hafa hugsað vel um kroppinn var hann veikur og ákvað að draga mig í hlé frá öllu námskeiðahaldi. Þá fylltist ég sorg og var við það að bugast en tók svo ákvörðun um að vera áfram bjartsýn, fara upphátt með jákvæðar staðhæfingar, hugleiða, stunda jóga fyrir mig og dansa heima í stofu,“ lýsir Marta.

„Móðir mín, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, ól mig upp í að gefast aldrei upp og sú hugsun lúrði innra með mér.“

Gátan ráðin í síðasta tíma

Hvort það var á Danmerkurárunum eða á ferðum um fjarlægari lönd sem Marta sýktist í fyrra skiptið hefur hún ekki hugmynd um en kveðst oft hafa fengið móskítóflugubit á ferðum utanlands. Sjúkdómseinkennin komu allt í einu.

„Þetta byrjaði með verkjum í vinstra hné og þeir verkir vildu ekki gefa sig. Ég var fjörutíu og sex ára. Þegar ég fór til læknis vegna verkjanna sagði hann að ég væri nú farin að eldast, þetta væri líklega slit sem reynandi væri að gera við með uppskurði en ég var jógakennari og vildi ekki vera skorin í liðina.“

Hún kveðst ekki hafa talað um vanlíðanina nema við sína allra nánustu.

„Ég trúði því að ég yrði að vinna með þetta sjálf og vera í friði. Fór á stúfana að leita að hjálp. Úti um allt.“

Eftir heimsókn til kírópraktors og bowen-tæknis, höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð, slökun, fyrra lífs dáleiðslu og fleira kveðst Marta hafa leitað til náttúrulæknis.

„Þar hófst samtal, því náttúrulæknar gera sér far um að leita að orsökum meina,“ lýsir hún.

„Ég hafði farið í skann hjá sama náttúrulækni ári fyrr og virtist þá hraust. Í millitíðinni hafði ég farið í fjórar bólusetningarsprautur á einum degi á heilsugæslustöð vegna ferða til fjarlægra heimsálfa. Náttúrulæknirinn taldi allt verða brjálað í líkamanum við slíka bólusetningarskammta og giskaði á að þeir hefðu vakið upp einhverja vírusa og bakteríur sem legið hefðu í dvala. Það tók samt tíma að finna út hvað raunverulega var að en tókst loks með hjálp i-Health-tækni. Það var ekki fyrr en daginn áður en við fluttum til Noregs og ég var í minni síðustu i-Health-meðferð sem gátan var ráðin. Mér létti mikið við að fá greininguna, það var komin skýring sem ég gat unnið áfram með. Ég kom aftur heim til Íslands eftir mánaðardvöl í Noregi og fór í rúmlega tuttugu tíma i-Health meðferð hjá náttúrulækninum sem náði að hreinsa mig af bakteríunni.“

Langflestir sleppa við bakteríuna

Þegar sjúkdómurinn dúkkaði upp í annað sinn fór Marta inn á Google og fann náttúrulækni í Bergen sem bauð upp á i-Health-tækni. Hann greindi hana eins og skot með Lyme. Þangað hefur hún farið nokkrum sinnum í meðferð og tekið inn hómópatíu á milli ferða.

Að sögn Mörtu stendur læknastéttin því miður oft ráðþrota gagnvart Lyme-sjúkdómnum og greinir fólk ranglega með síþreytu, MS eða gigt. Hún veit um norskan lækni sem veiktist sjálfur af Lyme og gekk með sjúkdóminn í fjögur ár án þess að átta sig á hvað var að.

„Þessi læknir, Bjørn Johan Øverby, er víst algjör snillingur en hann fann enga lausn á sínum vanda. Svo hann ákvað að fara óhefðbundar leiðir, er farinn að fræða almenning um þær og er með bók í uppsiglingu. Hann er að fara á eftirlaun og hefur engu að tapa í sambandi við lækningaleyfið.“

Marta kveðst vilja fræða fólk um Lyme-sjúkdóminn en ekki hræða.

„Ég er líklega gott dæmi um að hægt sé að hreinsa bakteríuna út og læknast með hjálp náttúrunnar. Nú veit ég að verði ég fyrir flugnabiti aftur tek ég inn Ledum hómópatíu 30C nokkrum sinnum á dag í nokkra daga,“ segir hún. Tekur líka fram að langflestir sleppi við að fá bakteríuna þó þeir séu bitnir af Lyme-sýktu skordýri.

„Við hjónin höfum bæði verið bitin af klakflugu hér í Noregi og Frikki minn fékk engin viðbrögð. Við göngum enn um skóginn og höldum áfram að elska öll dýrin stór og smá.“

Hún sér fyrir sér að Lyme-sjúkdómur opni fyrir gagnlega samvinnu milli hefðbundinna lækna og náttúrulækna, líkt og tíðkist í Þýskalandi. Þar reki þeir spítala saman og sjúklingar fái það besta úr báðum geirum.

„Einn daginn munu þessar tvær stéttir sjá auðinn hvor í annarri og sameinast undir kjörorðinu lækningar fyrir alla. Ég trúi því að ákveðinn tilgangur sé með öllu og held að lífið sé að kenna okkur eitthvað nýtt með þessum dularfulla sjúkdómi,“ segir Marta og kveðst ekki bitur eftir að hafa lent í veikindaferlinu. „Það er skrítið að segja það en ég er þakklát núna því ég lærði helling og er enn að læra.“

Lyme-sjúkdómurinn þekktur í 32 ár



Það var árið 1975 að mæður hóps barna sem bjuggu í nágrenni hvert við annað í bænum Lyme, í Connecticut í Bandaríkjunum, vöktu athygli vísindamanna á því að börn þeirra hefðu öll verið greind með iktsýki.

Rannsóknir á barnahópnum leiddu að lokum til þess að bakterían Borrelia burgdorferi sem var orsök veikinda þeirra, var greind og frá árinu 1982 hefur sjúkdómurinn sem hún veldur gengið undir nafninu Lyme.

Skógarmítill

Skógarmítill, sem er liðfætla, fannst fyrst hér á landi á farfugli 1967, samkvæmt upplýsingum Náttúrufræðistofnunar Íslands. Stofnunin telur að hann sé að öllum líkindum orðinn landlægur, enda hefur útbreiðslusvæði hans færst norður á bóginn með hlýnandi loftslagi. Hann heldur sig í gróðri, einkum á skógarbotni.

Haraldi Briem sóttvarnalækni er ekki kunnugt um að nokkur hafi sýkst af Lyme-sjúkdómi á Íslandi.

I-Health

I-Health er heilsutækni þróuð af vísindamönnum í Hollandi fyrir hartnær tuttugu árum og prófuð í mörg ár áður en hún var kynnt þýsku heilbrigðisstéttinni. Hún er nú mikið notuð af náttúrulæknum, læknum og hjúkrunarfræðingum í Þýskalandi, meðal annars til greiningar á Lyme-sjúkdómnum hjá fólki og jafnframt úthreinsun á bakteríunni sem honum veldur, með góðum árangri.

Ekkert innlent smit

„Við höfum aldrei staðfest innlent smit á Lyme-sjúkdómnum,“ segir Ólafur Guðlaugsson, sérfræðingur í smitsjúkdómum á Landspítalanum.

„Mítlar berast hingað með fuglum en aldrei hefur fengist á hreint hvort þeir hafi viðhaldið smitferli hér, sem er býsna flókið.“

Ólfur segir Lyme stöku sinnum finnast í fólki sem sé að koma frá útlöndum og yfirleitt greinast á fyrsta stigi, með blóðprufu.

„Megnið af heimilislæknum á Íslandi eru menntaðir á Norðurlöndum, þar sem þetta er algengt, og þekkja þessi einkenni vel. Þeir hafa aðgang að rannsóknarstofu Landspítalans og geta sent blóðprufur þangað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.