Kaffi hjá mömmu Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 12. apríl 2014 10:00 Mæðgurnar Ásdís Rán og Victoría Rán sælar saman í afslöppun við Tjörnina í Reykjavík. Mynd/Úr einkasafni
Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir ann fjölskyldu sinni og íslenskri náttúru en veit ekki fyrir víst hvort hún sé alkomin heim.Hvað er það sem þú gerir alltaf um helgar? Það er misjafnt þegar ég er heima á Íslandi en ég hef haldið í þá ágætu venju að fara minnst einu sinni á æfingu og svo hefur verið hefð að kíkja í bröns á Laundromat með krökkunum mínum og vinum á sunnudögum. Ég kíki líka oftast í kaffi til mömmu.Hvað ætlar þú að gera sérstakt um þessa helgi? Þessi helgi verður róleg. Ég vinn talsvert mikið að skipulagningu og tökum á nýjum þætti mínum á Stöð 3 þessa dagana og fer því ekki mikið út og ekkert sérstakt plan um þessa helgi.Hvar finnst þér best að vera um helgar? Mér finnst voða gott að komast út úr bænum með krakkana í bústað, njóta náttúrunnar og leyfa henni að fylla mig af orku. Í Búlgaríu þykir mér best að liggja á sundlaugarbakkanum heima, sitja úti á svölum og njóta veðursins, eða bara horfa á stjörnurnar.Vakirðu lengur um helgar og þá við hvað? Ég vaki yfirleitt ekki lengi fram eftir nema að ég fari út á lífið. Þá getur dregist ansi lengi að fara í háttinn.Ertu árrisul eða sefurðu út um helgar? Ég vakna klukkan 7.30 alla virka daga og um helgar sef ég kannski til níu eða tíu. Það er svolítið eins og að sofa út hjá mér.Hver er draumamorgunverðurinn? Ég elska góðan Nutribullet-ávaxta- og grænmetisþeyting sem ég útbý úr fersku hráefni og bæti saman við prótíni eða skyri. Það er toppurinn.Hvernig er dæmigert laugardagskvöld í þínu lífi? Annað hvert laugardagskvöld er mjög rólegt og þá höfum við krakkarnir það gott saman heima. Hin laugardagskvöldin eru aðeins villtari og spunnin upp hverju sinni. Stundum nýti ég fríhelgarnar til að fara út fyrir landsteinana og hitta vini.Ertu með nammidag og hvert er uppáhaldssælgætið þitt? Ég hef ekki verið með nammidag síðustu mánuði og leyfi mér frekar það sem ég vil á tilfallandi dögum. Uppáhaldsnammið mitt er eiginlega allt sem inniheldur súkkulaði en ég hugsa að Nóa Kropp sé í fyrsta sæti.Hvað maularðu í sjónvarpssófanum? Ég er ekki mikið í því að maula á kvöldin en yfirleitt á ég til 70% súkkulaði og fæ mér kannski nokkra litla bita. Og ég borða oft harðfisk. Það er snilld að maula hann á kvöldin.Heldurðu hvíldardaginn heilagan? Nei, það er voða lítið heilagt í minni rútínu, en vonandi verður hann heilagur þegar ég er komin í betri rútínu og búin að koma mér fyrir á Íslandi eða úti. Ég er ekki alveg viss hvar ég verð núna.Ferðu til kirkju eða hlustar á útvarpsmessuna á sunnudögum? Nei, ég hef ekki gert það.Hvað verður með sunnudagskaffinu og með hverjum drekkur þú það? Ætli ég skreppi ekki til Vignis bróður. Þau hjónin eru meistarar í gómsætum hollustukökum og bíða alltaf með ilmandi kaffi og nýbakaða köku á sunnudögum. Sunnudagar eru einkar þægilegir heimsóknardagar, finnst mér.Til hvers eru helgarfrí, að þínu mati? Til að verja tíma með fjölskyldunni, gera eitthvað skemmtilegt saman, njóta lífsins, hlaða batteríin, hafa það gaman og kósí og svo er líka gott að gera ekki neitt.Hvað ætlarðu að gera um páskana? Ég ætla að halda upp á 7 ára afmæli prinsessunnar minnar, Victoríu Ránar, og undirbúa mig fyrir komandi myndatökur í Lundúnum fyrir tvö erlend blöð.Hvernig upplifun er það að vera flutt aftur heim? Það hefur sína kosti og galla. Það er svolítið erfitt þegar maður hefur búið í útlöndum í áratug. Hér heima er allt svo ólíkt og ég orðin vön allt öðruvísi lífi. Ég er þó að aðlagast smátt og smátt og vitaskuld er alltaf gott að vera nálægt fjölskyldunni. Það hefur ekki verið auðvelt fyrir þau að hafa mig svona langt í burtu undanfarin ár. Ég vil nú samt ekki viðurkenna að ég sé flutt heim. Ég er hér í verkefni fram í júní og sé svo til hvað gerist eftir það.
Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát Sjá meira