Óstaðlaðir leikskólar Kristín Dýrfjörð skrifar 21. febrúar 2014 06:00 Síðustu 30 ár hafa margir leikskólar hérlendis og erlendis valið að kenna sig við hugmyndafræði sem ættuð er frá bænum Reggio Emilia á Ítalíu. Leikskólastarfið Í Reggio er víðfrægt og má nefna að margir helstu alþjóðlegu fræðimenn og hugmyndafræðingar um leikskólauppeldi eru þar fastagestir og leikskólarnir hafa verið valdir með því besta í heimi. Hugmyndafræðinni kynntust íslenskir leikskólakennarar upp úr 1980 og hún heillaði marga. Á Íslandi hefur leikskólastarf verið gróskumikið og hér þekkjum við leikskóla sem kenna sig við alls konar strauma og stefnur. Þar mætti bæði nefna hugmyndafræði Hjallastefnunnar og Grænfánann. Þær eiga það sameiginlegt að til að geta kennt sig við viðkomandi stefnu þarf fólk að uppfylla skilyrði og jafnvel kaupa efni og námskrár frá viðkomandi eigendum. Ef leikskóli ætlar t.d. að fá Grænfánann fær hann handbók, verður skóli á grænni grein og fer að innleiðingarferli loknu í sérstaka úttekt. Að henni lokinni fær leikskólinn eða fær ekki viðurkenningu. Hins vegar ef leikskóli ætlar að starfa í anda Reggio er engin slík vottun til. Það er andstætt hugmyndafræðinni að setja staðla og reglur um hvað sé í þeirra anda og hvað ekki. Hvers vegna er það? Jú, m.a. vegna þess að í Reggio telur fólk leikskólastarf snúast um nokkur lykilatriði. Eitt þeirra er að skoða með opnum hug nýjar rannsóknir og þekkingu og meta hvernig þau geta nýtt hana til að bæta starfið. Þau vilja vera í samræðu við samfélagið og umheiminn – samræða er alltaf í fleiri en eina átt. Að setja staðal er því andstætt þessu grundvallarviðhorfi. Aðrar áherslur þeirra eru á að hlusta á barnið með öllum skilningarvitum, á öll tungumál barnsins, að gefa tækifæri til sköpunar og gagnrýninnar hugsunar. Sjálfbærni er ennfremur eitt lykilhugtaka.Einkenni leikskóla sem starfa í reggioískum anda Í mínum huga er í raun tvennt sem einkennir leikskólastarf í Reggio öðru fremur. Annað er það sem þau kalla sýn til barna. Að barnið sé haft með í ráðum og að barnið ráði við að vera með í ráðum, að grunnstef starfsins sé trú á getu barna. Þess vegna er hitt atriðið sem einkennir starfið í Reggio mér einkar hugleikið, en það er lýðræði. Lýðræðið nær ekki bara til starfsins með börnunum heldur til stjórnunar, til samstarfs við foreldra og samfélagsins í heild. Þar sem fólk í raun trúir að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn svo vel sé. Á Íslandi eru margir leikskólar sem hafa valið að vera í hugmyndafræðilegu samtali við Reggio, stundum kallaðir Reggio-skólar þó svo að auðvitað séu þeir það ekki. Enginn leikskóli nema leikskólar í Reggio eru Reggio-skólar. Við hin getum hins vegar lært með þeim og af þeim. En vegna þess að það er í raun hvers leikskóla að ákveða hvað hann tekur úr hugmyndafræði Reggio Emilia eru þeir leikskólar sem starfa í þeim anda mjög ólíkir. Sem dæmi starfa bæði leikskólinn Sæborg í Reykjavík og Holt í Reykjanesbæ í þeim anda. Báðir skólarnir leggja áherslu á sköpun. Sæborg hefur staðið einna fremst í flokki þeirra leikskóla hérlendis sem hafa unnið með og tengt saman nærumhverfi og listir. Sýning á Kjarvalstöðum síðastliðið vor og verk þeirra í Þjóðminjasafninu eru merki um það. Á Holti var farið í samstarf um skipulag útinámsvæðis með bæjarfélaginu og arkitektum. Þar sem leitað var raunverulegs álits barnanna og það nýtt í skipulagsvinnunni. Í Aðalþingi í Kópavogi er áherslan á sjálfbærni í anda Reggio, þar er mikið af endurnýtanlegum efnivið en líka áhersla á lýðræði í barnahópnum. Þar er t.d. matstofa þar sem börnin bjarga sér algjörlega sjálf og hafa val um bæði mat og sætisfélaga. Í Stekkjarási í Hafnarfirði er áhersla á útinám og að vinna með endurnýtanlegan efnivið og er það sá leikskóli sem fyrstur tók upp efnisveitu innan skólans. Að lokum ætla ég að nefna leikskólann Marbakka í Kópavogi sem ákvað að starfa í þessum anda fyrir um 30 árum fyrstur íslenskra leikskóla og helgar sig enn „reggioískum“ vinnubrögðum. Þeir sem koma inn í leikskóla sem starfa raunverulega í anda Reggio sjá að þeir eiga margt sameiginlegt en líka að þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir. Að hver leikskóli ber svipbragð af þeim sem þar starfa og því samfélagi sem hann er í. Að það er ekki til neinn staðall og að hver leikskóli skilgreinir samræðu sína við Reggio.Samræða á Íslandi Hluti af því að vera í samræðu er að eiga ígrundað og reglulegt samtal við aðra, bæði þá sem starfa í sama anda og þá sem geta ögrað viðteknum hugmyndum og þekkingu. Til þess að eiga í þessari nauðsynlegu samræðu ræða leikskólakennarar í „reggíóískum“ leikskólum oft saman, þeir eiga hlut í vefsamfélögum, innlendum og erlendum, sækja námskeið erlendis bæði á Norðurlöndum og í Reggio. Nú ber hins vegar svo við að fólkið í Reggio ákvað að koma til Íslands 7. og 8. mars nk. og bjóða upp á samræður við þá sem áhuga hafa. Aðalfyrirlesarinn verður Amelia Gambetti, en hún er ein þeirra sem lögðu grunninn að leikskólastarfinu í Reggio Emilia. Þau ætla að segja frá hvernig það þarf heilt þorp til að ala upp barn, hversu miklu máli skiptir að bæði þeir sem eru í pólitík og þeir sem eiga börn í leikskólunum eða starfa þar, tali saman. Að það sé samfélagslegt verkefni að reka leikskóla og það gangi ekki upp nema allir séu samtaka. Þarna gefst því fólki sem hefur valið að leita hugmyndafræðilega til Reggio tækifæri til að heyra frá frumkvöðlum leikskólastarfsins þar og þeim sem áhuga hafa á starfinu þar býðst tækifæri til að vita meira. Sérstaklega held ég að stjórnmálafólk hefði gagn af að heyra hvernig nútíma framúrskarandi leikskólastarf er skipulagt. Ráðstefnan er öllum opin. Til að skrá sig þarf að „gúggla“ heimasíðu Reggio Children en þar er allar nánari upplýsingar að finna.Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Olafsdóttir Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmar Heiðdal Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Ég neita að trúa... Guðlaug Kristjánsdóttir Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bandaríkin voru alltaf vondi kallinn Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir Skoðun Gervigreind fyrir alla — en fyrir hvern í raun? Sigvaldi Einarsson Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Olafsdóttir skrifar Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmar Heiðdal skrifar Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gervigreind fyrir alla — en fyrir hvern í raun? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar Skoðun Bandaríkin voru alltaf vondi kallinn Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Erum við á leiðinni í hnífavesti? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar Skoðun Kæfandi klámhögg sveitarstjóra Jón Trausti Reynisson skrifar Skoðun Klár fyrir Verslunarmannahelgina? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Vegið að börnum í pólitískri aðför að ferðaþjónustunni Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Hið tæra illa Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Ferðamannaiðnaður? Nei, ferðaþjónusta! Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Hæðarveiki og lyf Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Landsvirkjun hafin yfir lög Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Þau eru framtíðin – en fá ekki að njóta nútímans Sigurður Kári skrifar Skoðun Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna þegir kristin, vestræn menning? Ómar Torfason skrifar Skoðun Trump les tölvupóstinn þinn Mörður Áslaugarson skrifar Skoðun „Já, hvað með bara að skjóta hann!“ Þórhildur Hjaltadóttir skrifar Skoðun Heimar sem þurfa nýja umræðu! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sársauki annarra og samúðarþreyta Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson skrifar Skoðun Alþjóðalög eða lögleysa? Urður Hákonardóttir skrifar Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Sjá meira
Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir Skoðun
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar
Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar
Skoðun Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson skrifar
Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar
Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir Skoðun