Trommari sem smíðar sín eigin trommusett Gunnar Leó Pálsson skrifar 8. febrúar 2014 09:30 Jón Geir Jóhannsson, trommuleikari og trommusmiður, hefur smíðað trommur í tíu ár. fréttablaðið/stefán „
Ég er búinn að smíða fjögur heil trommusett en þetta byrjaði sem fikt fyrir svona fimmtán árum,“ segir Jón Geir Jóhannsson trommuleikari og trommusmiður sem spilar eingöngu á trommusett sem hann hefur smíðað sjálfur. Hann er líklega best þekktur sem trommuleikari Skálmaldar, Ampop, Hrauns og fleiri sveita. Það var fyrst og fremst mikill áhuga á hljóðfærinu sem varð til þess að Jón Geir byrjaði að fikta við trommusmíðina. „Ég er mikið trommunörd og þetta byrjaði með því að ég byrjaði að taka í sundur dótið mitt og fikta.“ Hann byrjaði þó að smíða fyrir alvöru fyrir tíu árum og hefur á þeim tíma smíðað fjögur heil trommusett og 20 til 30 sneriltrommur. „Ég hef einu sinni keypt mér nýtt trommusett og það var árið 1992 en ég hef bara spilað á sett sem ég smíða síðustu tíu árin. Ég er þó mest í því að smíða sneriltrommur,“ útskýrir Jón Geir. Hann segist hafa sett sér það markmið að smíða nýtt trommusett fyrir hverja útgáfutónleika en það hefur þó ekki alveg gengið eftir. „Ég hef hins vegar alltaf bætt einhverju við trommusettið fyrir hverja útgáfutónleika.“ Fyrsta skrefið í trommusmíðaferli Jóns Geirs er að fara í ruslahauga og finna felgur, rör eða aðra sívala hluti sem henta upp á stærð og hafa fallegan tón. „Að fara í Vöku og gramsa í körum fullum af felgum er eins og að vera í nammilandi,“ bætir Jón Geir við. Eftir að hafa fundið hentuga felgu er fyrsta skrefið að láta renna af henni brúnina sem heldur dekkjunum á. „Svo ákveð ég hvernig ég ætla að lakka hana og hvort ég ætli að spónleggja hana.“ Hann hefur einnig notað affallsrör úr sanddæluskipi og á tvær þannig trommur. Þess má til gamans geta að önnur affallsrörtromman er til sýnis í Hljóðfærahúsinu-Tónabúðinni. Hvað tekur langan tíma að fullklára sneriltrommu þegar þú hefur fundið réttu felguna? „Það tekur allavega svona mánuð. Það þarf að bíða eftir að lakkið þorni og svona. Ég hef reyndar hent óhemjumagni af trommum þar sem ég hef verið að prófa mig áfram og ekki verið sáttur við útkomuna.“ Hann hefur einnig smíðað trommur úr PVC-vatnslagnarörum, sem fást til dæmis í Vatnsvirkjanum. Þá hefur hann smíðað nokkra viðarsnerla. Jón Geir segist alltaf hafa öfundað fólk sem kann að smíða. „Ég kann ekki að smíða neitt sem ekki er hringlaga, það fúnkerar í hausnum á mér, annars er ég með formblindu og gæti t.d. ekki smíðað kassa þótt ég ætti lífið að leysa.“
Mest lesið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Fleiri fréttir Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Sjá meira