Tekin með 27 þúsund steratöflur í jólapappír Þorgils Jónsson skrifar 7. febrúar 2014 10:24 Tæki á borð við þessa ampúluvél eru meðal þeirra sem tollverðir hafa lagt hald á síðustu ár og styðja grun um að hér á landi séu steraefni fullunnin í söluform. Mynd/Tollgæslan
Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fundu nýverið um 27 þúsund steratöflur í farangri konu sem kom til landsins frá Póllandi. Grunur vaknaði um að hún hefði ólögleg efni í farteski sínu og við leit fundust fyrrnefnd efni í kassa sem pakkað var í jólapappír. Töflurnar innihéldu nokkrar gerðir af sterum. Konan, sem er erlendur ríkisborgari um þrítugt, var handtekin og yfirheyrð hjá lögreglunni á Suðurnesjum, sem fer með rannsókn málsins. Hún hefur nú verið látin laus. Í frétt á vef Tollstjóra segir að tollverðir hafi í vaxandi mæli, tvö síðastliðin ár, stöðvað sendingar sem innihalda tól og tæki sem talin séu ætluðu til ólöglegrar lyfjaframleiðslu. Þar á meðal séu áberandi tómir lyfjabelgir, tóm glerglös og ál- og gúmmíhettur. Einnig hafi fundist efni og umbúðir, sem líklegt sé að nota eigi í framleiðslu og/eða pökkun ólöglegra efna. Samkvæmt upplýsingum á vef Tollstjóra var árið 2012 lagt hald á hátt í tíu kíló af steradufti, sem hefði dugað til framleiðslu á fleiri hundruð þúsund steratöflum og þykir það renna enn frekari stoðum undir þann grun að hér á landi hafi fullvinnsla steraefna í söluform aukist.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Sjá meira