Lífið

Heilluðu strangan íslenskukennara upp úr skónum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
"MK er í hjarta mínu,“ segir Árni og Magnús tekur undir.
"MK er í hjarta mínu,“ segir Árni og Magnús tekur undir. Fréttablaðið/Stefán
„Þetta byrjaði þannig að við fengum verkefni í íslensku sem átti að vera um Þórð Kakala og ferð hans frá Noregi. Hann átti að vera að skrifa móður sinni bréf. Við fengum þriggja daga skilafrest og máttum gera það sem við vildum. Við vildum koma á óvart og gera eitthvað öðruvísi,“ segir Árni Páll Árnason, nemandi á öðru ári í Menntaskólanum í Kópavogi. Hann og vinur hans, Magnús Kolbjörn Eiríksson, ákváðu að leysa íslenskuverkefnið með því að búa til rappmyndband.

„Við erum með frekar strangan íslenskukennara og bjuggumst við því að hann myndi slökkva á þessu. Svo gaf hann okkur tíu fyrir verkefnið,“ bætir Árni við. Hann samdi textann við lagið en takturinn var fenginn úr laginu Go To Church með Ice Cube, Lil Jon og Snoop Dogg. Magnús sá um heimildarvinnuna en strákarnir unnu verkefnið á mettíma.

„Þetta var yndislegt samstarf. Við byrjuðum að skrifa texta klukkan átta á fimmtudagskvöldi og kláruðum myndbandið á miðnætti. Skilafresturinn rann út á föstudeginum þannig að við vorum bara fjóra tíma að vinna þetta,“ segir Magnús.

Íslenskukennari drengjanna er Fríða Proppé en eftir að þeir gerðu myndbandið hefur það verið sýnt í öllum íslenskutímum í skólanum.

„Ég held að það sé vegna þess að það er svo frumlegt. Þetta hefur aldrei verið gert áður í skólanum. Ég held að Fríðu hafi líka fundist gaman að við höfum nútímavætt gamla sögu,“ segir Magnús. „Ég er mjög ánægður með að fá meira en 5 því ég tala um að leggja lók í myndbandinu,“ segir Árni. Hann verður kynnir á söngvakeppni skólans 13. febrúar og ætlar sér stóra hluti í rappheiminum þar sem hann gengur undir listamannsnafninu Herra Hnetusmjör.

„Ég hef verið í miklu sambandi við Erp – hann er pabbi, og Valby-bræður. Við ætlum að gera hluti saman og ég mun gefa út „mix tape“ í mars eða apríl sem verður frítt á netinu. Ég hef verið að vinna í því í SoundRush í Hamraborg,“ segir Árni. Það stendur ekki á svörunum þegar hann er spurður hvert hann stefni í tónlistarbransanum.

„Á toppinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.