Opnuðu veitingastað til að hittast meira Ugla Egilsdóttir skrifar 6. febrúar 2014 11:30 Vilhjálmur og Joke bjóða upp á mat á góðu verði. Mynd/Heikki Verdurme „
Við ákváðum að opna veitingastað saman til að geta eytt meiri tíma saman,“ segir Vilhjálmur Sigurðarson, sem opnaði veitingastað í Belgíu á dögunum með konu sinni. „Við höfðum bæði svo mikið að gera áður og stundaskráin passaði svo illa saman að við hittumst ekki nema í átta klukkutíma á viku, og allur tíminn sem við höfðum saman fór í praktíska hluti eins og matarinnkaup og að borga reikninga,“ segir Vilhjálmur. Kona Vilhjálms heitir Joke Michiel og er frá Belgíu. „Við kynntumst þegar hún var að gera sjónvarpsþátt um veitingastaðinn Hertog Jan, þar sem ég vann áður. Síðan þróaðist það yfir í eitthvað meira. Joke vann sem leikstjóri og framleiðandi fyrir sjónvarpsstöð hér í Belgíu. Við giftum okkur síðasta sumar og eigum von á okkar fyrsta barni eftir sex vikur.“ Veitingastaðurinn heitir Souvenir og var opnaður 1. febrúar eftir langan undirbúning. „Þetta hljómar voðalega rómantískt, en þetta er auðvitað mikil vinna. Við erum stolt og sátt með að hafa tekið þessa ákvörðun, en þetta er auðvitað ekkert auðvelt. En þetta er hverrar mínútu virði,“ segir Vilhjálmur.Veitingastaðurinn Souvenir er í bænum Leper í flæmska hluta belgíu.Mynd/Heikki VerdurmeVilhjálmur hafði lengi unnið sem kokkur. „Ég fór fyrst til Englands þar sem ég starfaði um skamma hríð. Síðan hélt ég áfram og endaði í Belgíu fyrir að verða fjórum árum. Þar vann ég á stað sem heitir In de Wulf og síðan á Hertog Jan. Ég sagði upp stöðu minni á síðarnefnda staðnum til að stofna nýja veitingahúsið,“ segir Vilhjálmur. Hjónin leituðu lengi að heppilegum stað fyrir veitingastaðinn. „Souvenir er í bæ sem heitir Leper og er í flæmska hluta Belgíu. Það mætti kalla það miðsvæði landbúnaðar í Belgíu. Við vinnum náið með bændum á svæðinu. Til dæmis kaupum við allar mjólkurvörur frá sama bóndanum. Það virðist vera mikil ánægja með staðinn. Hann fyllir upp í eitthvað sem vantaði hérna. Hugmyndafræðin er einföld: Við notum ferskt hráefni úr nánasta umhverfi og búum til ódýran mat. Þetta er góður veitingastaður en samt ekki í verðflokki þar sem menn verkjar í veskið eftir matinn. Hér eru margir staðir þar sem maturinn kostar 200-300 evrur á mann. Hjá okkur er hins vegar þriggja rétta matseðill í boði fyrir 28 evrur eða 5 rétta matseðill fyrir 55 evrur.“ Maturinn er úr fersku hráefni frá bændum í nágrenninu.Mynd/Heikki Verdurme
Mest lesið Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni „Ég er skíthræddur“ Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Fleiri fréttir Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Sjá meira