Hádegistónleikaröðin Ljáðu mér eyra hefst 5. febrúar 2014 09:30 Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona kemur fram á fyrstu tónleikunum, sem fram fara í dag. mynd/einkasafn
Tónleikaröðin Ljáðu mér eyra hefst aftur í Fríkirkjunni í dag klukkan 12.15. Um er að ræða hálftíma tónleika í hvert skipti undir styrkri stjórn píanóleikarans Gerrits Schuil en hann fær til liðs við sig marga af helstu stjörnum íslensks tónlistarlífs. „Píanóleikarinn Gerrit Schuil hóf þessa tónleikaröð árið 2009 en hann er einn af okkar helstu meðleikurum hér á landi og á auðvelt með að fá til liðs við sig helstu kanónur landsins úr klassíska geiranum,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona. Hún verður jafnframt fyrsti gestur Schuil. Hún hefur getið sér gott orð undanfarin ár sem litríkur flytjandi á óperusviði, óratoríusviði og fyrir flutning sinn á barokktónlist en hefur einnig vakið mikla athygli fyrir ljóðasöng. Hallveig sló eftirminnilega í gegn í hlutverki Michaëlu í uppsetningu Íslensku óperunnar á Carmen í haust og er tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir hlutverkið.Píanóleikarinn Gerrit Schuil hóf tónleikaröðina árið 2009.mynd/tómas jónsson„Gerrit Schuil er frábær píanisti og er líka einn okkar aðalljóðatúlkandi,“ segir Hallveig. Schuil er frá Hollandi en hefur búið hér á landi í 21 ár og unnið við ýmislegt. Hann hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið listrænn stjórnandi hjá Íslensku óperunni ásamt því að kenna. „Tónleikaröðin stendur til 9. apríl og verður alltaf á hverjum miðvikudegi og kostar einungis þúsund krónur inn. Það hefur alltaf verið ágætis aðsókn á tónleikana. Tónleikaröðin hefur verið í pásu síðan 4. desember enda desembermánuður mikill annamánuður fyrir tónlistarmenn,“ segir Hallveig. Á tónleikum vorsins koma til að mynda fram með honum þau Diddú, Hanna Dóra Sturludóttir, Ágúst Ólafsson, Guðný Guðmundsdóttir og Þóra Einarsdóttir ásamt fleirum. Gerrit Schuil hefur unnið hug og hjörtu hlustenda fyrir meðleik sinn og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónlistarflytjandi ársins fyrir samvinnu sína og Ágústs Ólafssonar í ljóðaflokkum Schuberts árið 2011.
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Sjá meira