Hafnar áburði um áróðursdeild Jóhannes Stefánsson skrifar 5. febrúar 2014 09:00 Júlíus Vífill undrast að tíu manns starfi fyrir vefdeild Reykjavíkur.
Í ræðu á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi um gagnsæi í fjármálum Reykjavíkurborgar hafði Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, orð á því að upplýsinga- og vefdeild Reykjavíkurborgar bæri út áróður í þágu núverandi meirihluta. „Ég sé engan áróður eða eitthvað sem óþarfi er og neita því alfarið að upplýsinga- og vefdeild Reykjavíkur sé áróðursdeild,“ svaraði Jón Gnarr borgarstjóri um þær fréttir sem deildin hafði birt á vef Reykjavíkurborgar. „Að hafa svona orð um starfsfólk borgarinnar er dónaskapur og ekkert annað,“ bætti hann við. Í samtali við Fréttablaðið skýrði Júlíus Vífill ummæli sín á þennan veg: „Nú eru tíu manns starfandi þar við að koma fréttum og upplýsingum á framfæri. Það er nokkuð vel í lagt.“ Á fundinum kom líka fram gagnrýni á vinnubrögð meirihlutans. „Fjórðungur þeirra tillagna sem við leggjum fram í borgarráði eru svæfðar og stungið ofan í skúffu. Þetta er ómerkileg og gamaldags pólitík sem ætti að vera búið að leggja til hliðar,“ segir Júlíus og bætir við að slík vinnubrögð séu í ósamræmi við ábendingar frá úttektarnefnd um stjórnskipun borgarinnar.
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Erlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Erlent Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Erlent Fleiri fréttir Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Sjá meira