Innlent

Suðurnesjameenn segja heilbrigðiskerfið óréttlátt

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Í Sandgerði vilja menn sitja við sama borð og aðrir landsmenn.
Í Sandgerði vilja menn sitja við sama borð og aðrir landsmenn. Fréttablaðið/Friðrik
„Ekki verður lengur við það unað að framlög til heilbrigðisþjónustu á hvern íbúa á Suðurnesjum verði áfram í slíku ósamræmi við aðra þegna landsins og raun ber vitni,“ segir bæjarráð Sandgerðis.

Með bókun sinni kveðst bæjarráðið taka undir gagnrýni annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum:

„Það er réttlætismál að yfirvöld heilbrigðismála bregðist við og leiðrétti hróplega mismunun sem komið hefur í ljós við samanburð á framlögum ríkisins til heilbrigðismála á svæðinu miðað við önnur svæði landsins. Bæjarráð skorar á þingmenn Suðurkjördæmis að sameinast um að beita sér fyrir leiðréttingu þessa misræmis.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×