Innlent

Ríkið bæti borginni tapaðar tekjur

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Reykjavíkurborg kveðst tapa útsvari vegna séreignarsparnaðar sem lækkar lán.
Reykjavíkurborg kveðst tapa útsvari vegna séreignarsparnaðar sem lækkar lán. Fréttablaðið/Vilhelm
„Eðlilegt er að krefjast þess að borginni verði bættar útsvarstekjur sem falla endanlega niður og útgjöld sem falla til vegna þessara aðgerða,“ segir í samþykkt borgarráðs um áhrif ráðstöfunar á séreignarsparnaði.

Vísað er til minnisblaðs fjármálaskrifstofu borgarinnar þar sem rakin eru neikvæð áhrif fyrirliggjandi tillagna og tengdra laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar til lækkunar höfuðstóls fasteignalána, annars vegar á útsvarstekjum og hins vegar á launatengdum útgjöldum. Heildaráhrif til tekjulækkunar og útgjaldaauka geti orðið um sjö milljarðar króna. Þar af geti tekjur lækkað um 450 milljónir króna á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×