Innlent

Bæjarstjórnarfundir fyrir opnum dyrum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Úr Bæjarstjórn Kópavogs Fundum úr bæjarstjórn Kópavogs er útvarpað beint.
Úr Bæjarstjórn Kópavogs Fundum úr bæjarstjórn Kópavogs er útvarpað beint. Fréttablaðið/Stefán
„Bæjarstjórnarfundir eru haldnir fyrir opnum dyrum,“ segir í svari Kópavogsbæjar til Kauphallar Íslands sem óskaði skýringa á því að fjölmiðlar sögðu frá samþykkt um byggingu félagslegs húsnæðis áður en tilkynning barst um málið til Kauphallarinnar.

Málið varðar umtalaða samþykkt þar sem óvæntur meirihluti varð fyrir tillögu fulltrúa minnihluta um mikla uppbyggingu á félagslegu húsnæði. Kauphöllin vildi fá að vita hvers vegna upplýsingar um þessa niðurstöðu hafi ekki verið birtar án tafar eða eins fljótt og unnt var, líkt og reglur kveði á um. Einnig var beðið um skýringar á því að fjölmiðlum hafi verið veittur aðgangur að upplýsingum áður en þær voru gerðar opinberar.

„Hjá Kópavogsbæ er sá hátturinn hafður á að bæjarstjórnarfundum er útvarpað beint. Fjölmiðlar fylgjast gjarnan með fundum bæjarstjórnar Kópavogs og hafa væntanlega gert sér frétt úr efni fundarins. Engar tilkynningar voru sendar frá Kópavogsbæ til fjölmiðla varðandi nefnda ákvörðun áður en téð tilkynning var send til Kauphallar,“ svara bæjaryfirvöld.

Bæjaryfirvöld segja að brugðist hafi verið við án ástæðulauss dráttar með tilkynningu til Kauphallar daginn eftir fundinn, áður en fjölmiðlum hafi verið formlega gert viðvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×