Innlent

Nýting Hengilsvæðis í einu skipulagi

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Skoða á orkuvinnsla á Hengilsvæði heildstætt.
Skoða á orkuvinnsla á Hengilsvæði heildstætt. Fréttablaðið/GVA
Skipulagsstofnun telur mikilvægt að tekið sé á skipulags- og matsmálum nýtingar Hengilssvæðisins með sem heildstæðustum hætti.

Þetta kom fram á fundi Skipulagsstofnunar og Orkuveitu Reykjavíkur vegna aðalskipulags Ölfuss.

„Rætt hefur verið um hugmyndir að vinna að heilstæðu skipulagi jarðhitanýtingar á Hellisheiði þar sem fjallað verði um fyrirsjáanlega möguleika í þróun á nýtingu svæðisins,“ segir um málið í fundargerð skipulagsnefndar Ölfuss sem kvaðst taka jákvætt í að farið verði í rammaskipulag fyrir heildstæðu skipulagi jarhitanýtingar á Hellisheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×