Innlent

Bæta ekki fyrir vatnsaga á lóð

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Vatnsagi olli tjóni á Urðarstíg á Ísafirði.
Vatnsagi olli tjóni á Urðarstíg á Ísafirði. Fréttablaðið/Rósa
Ofanflóðanefnd neitar að verða við ósk Ísafjarðarbæjar og styrkja framkvæmdir vegna vatnsaga á tveimur lóðum við Urðarveg á Ísafirði.

„Framkominni ósk um styrk var synjað þar sem ekki hefur verið rökstutt að vatnsaginn hafi verið tilkominn vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir og ekki var leitað eftir stuðningi við framkvæmdina áður en hún fór fram,“ útskýrir ofanflóðanefndin.

Hins vegar veitti nefndin 250 þúsund krónur vegna framkvæmda við vegslóða við ofanflóðavarnir neðan Gleiðhjalla




Fleiri fréttir

Sjá meira


×