Grunur um hræeitrun úr ónýtri heyrúllu Kristjana Arnarsdóttir skrifar 9. janúar 2014 07:45 Smitist hross af svokallaðri hræeitrun eru góðar líkur á því að heyrúllur séu sýktar. fréttablaðið/stefán
Grunur leikur á að hross hafi drepist af völdum hræeitrunar á einum bæ í Skagafirði nú í byrjun janúar. Orsökin er öflugt taugaeitur, framleitt af bakteríunni Clostridium botulinum sem við ákveðnar aðstæður nær að magnast upp í rúlluheyi. Eitrunin getur valdið bráðadauða eða aðeins langvinnara formi sem einkennist af vöðvalömun, bæði í meltingarfærum og stoðkerfi.Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun, segir að unnið sé að greiningu á sýnum á Tilraunastöðinni á Keldum. „Það tekur tíma að útiloka aðra mögulegar orsakir en á meðan er fylgst mjög vel með hrossunum á bænum. Engin sértæk meðhöndlun er til við hræeitrun en hross sem aðeins sýna væg einkenni eiga þó möguleika á að lifa af með stoðmeðhöndlun.“ Sigríður telur líkur á að hrossin hafi veikst af rúlluheyi sem ekki hafi verkast nógu vel. „Það þarf þrennt til að hræeitrun nái sér á strik. Það þarf bakteríuna sem framleiðir eitrið, dýrahræ t.d. af fugli eða mús til að næra hana og loftfyrrðar aðstæður. Síðastnefnda skilyrðið getur skapast í heyrúllum þar sem mikil eða óheppileg gerjun hefur orðið.“ Hún segir þó ekki að um smitsjúkdóm sé að ræða og því engin hætta á því að sjúkdómurinn berist á milli bæja nema með fóðri. „En eftir erfiða heyskapartíð síðastliðið sumar óttast ég að eitraðar heyrúllur geti leynst víða og þess ber að geta að hross eru einstaklega viðkvæm fyrir eitrinu.“ Sigríður segir að ef um hræeitrun sé ræða í þessu tilfelli sé það ekki einsdæmi hér á landi. „Á nokkurra ára fresti hafa komið upp tilfelli þar sem einstakir hrossahópar hafa orðið veikinni að bráð. Það er mjög erfitt að varast hættulegar rúllur því eitrið er lyktarlaust og afar lítið þarf af því til að valda miklu tjóni.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira