Sjúklingar borga minna Eva Bjarnadóttir skrifar 8. janúar 2014 07:00 Sérfræðilæknar semja Mynd/Getty
Samningar náðust milli sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) í lok síðasta árs. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn og tók hann gildi 1. janúar. Læknar hafa frest til 10. janúar til þess að segja sig inn á samninginn. Nýr samningur leiðir oft til minni kostnaðarþátttöku sjúklinga og mun breytingin í skipta tugþúsundum króna í sumum tilfellum. Fyrri samningur við sérfræðilækna rann út í apríl 2011 og gaf heilbrigðisráðuneytið í millitíðinni út reglugerð sem gerði ráð fyrir endurgreiðslu til sjúklinga miðað við fyrri samninga. Læknar hækkuðu í kjölfarið komugjöld til að fylgja verðlagþróun og lenti hækkunin eingöngu á sjúklingum. „Nú verða engin komugjöld hjá þeim sem vinna samkvæmt samningnum,“ segir Steinn Jónsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur. Steinn segir skiptar skoðanir vera um samninginn. „Við höfum unnið á sama einingarverði frá árinu 2008, sem hefur dregist aftur úr kaupmáttarvísitölu um fjörutíu prósent. Læknar hækkuðu komugjöldin til að leiðrétta taxtana á meðan,“ segir hann, en nýr samningur leiðréttir einingarverðið að tveimur þriðju hlutum.Breyting hefur orðið á fyrirkomulagi samningsgerðarinnar og mun hver og einn læknir ákveða hvort hann vinni samkvæmt samningnum. Steinn segir breytinguna hafa verið gerða að beiðni SÍ túlki lög um sjúkratryggingar þannig að óheimilt sé að semja við stéttafélög. Læknafélag Reykjavíkur er ekki sammála túlkun Sjúkratrygginga á lögunum, en Steinn telur það þó að það muni ekki skipta sköpum um niðurstöðuna. „Ég hef á tilfinningunni að meginþorri sérfræðinga muni segja sig inn á samninginn, en það kemur í ljós í þessari viku,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira