2.800 umsóknir um störf flugliða Freyr Bjarnason skrifar 4. janúar 2014 07:00 Næsta sumar munu 130 flugliðar starfa hjá flugfélaginu WOW Air.
Um 1.200 manns sóttu um sumarstörf flugliða (flugfreyjur og flugþjónar) hjá flugfélaginu WOW air en þau voru auglýst í nóvember. Fimmtíu til sextíu verða ráðnir. Þetta er mikil aukning frá því á svipuðum tíma og í fyrra þegar átta hundruð sóttu um störf flugliða. „Það má eflaust rekja þennan áhuga til þess að síðasta haust fengum við flugrekstarleyfi og til þess að í lok maí höfum við flogið í tvö ár og erum því orðið eldra og reyndara flugfélag,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, spurð út í þennan mikla áhuga. Um 1.600 manns sóttu um þau eitt hundrað störf flugliða sem voru í boði hjá Icelandair og 1.200 þreyttu inntökupróf. Samanlagt munu um sjö hundruð manns sinna flugliðastörfum hjá flugfélaginu næsta sumar sem eru fleiri en nokkru sinni fyrr. Þrjú hundruð þeirra sem sóttu um störf flugliða hjá WOW air fara í inntökupróf í Háskólabíói á morgun og í kjölfarið munu viðtöl hefjast um miðjan mánuðinn. „Þetta er frekar þungt próf. Það er mikill reikningur í því. Þarna er verið að breyta yfir í aðra mynt og annað. Það þarf líka að hafa góða tungumálakunnáttu og almenna þekkingu,“ segir Svanhvít. Í hópi þeirra sem sóttu um starfið eru lögfræðingar, hjúkrunarfræðingar, leikarar, kennarar, dansarar, verkfræðingar, tannlæknanemar og afreksfólk í íþróttum. Elsti umsækjandinn er fæddur 1953 en aðeins þeir sem eru fæddir 1992 og eldri máttu sækja um. Fleiri karlmenn voru á meðal umsækjanda í ár, eða um tvö hundruð í samanburði við áttatíu í fyrra. „Það er ánægjulegt að fleiri karlmenn hafi lagt inn umsókn því við viljum endilega fá sem flesta karlmenn inn í þetta starf,“ segir Svanhvít en tæplega sextíu karlmenn munu þreyta inntökuprófið á morgun. Næsta sumar munu starfa um 130 flugliðar hjá flugfélaginu. WOW air verður með fimm vélar í rekstri og mun fljúga til sautján áfangastaða. Gert er ráð fyrir um sex hundruð þúsund farþegum með flugfélaginu á þessu ári en í fyrra flaug það með 450 þúsund farþega.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira