Náttúruverndarsamtök Íslands fordæma ákvörðun umhverfisráðherra 4. janúar 2014 14:19 Mynd/Landsvirkjun „
Umhverfisráðherra hefur með ákvörðun sinni um breytingu á friðlýsingarskilmálum þeim sem Umhverfisstofnun vann fyrir stækkun friðlandsins í Þjórsárverum - í samræmi við gildandi náttúruverndaráætlun og í samræmi við rammaáætlun - enn á ný opnað fyrir að víðerni svæðisins vestan Þjórsár verði spillt, að hinir stórkostlegu fossar, Kjálkaversfoss, Dynkur og Gljúfurleitarfoss neðar í Þjórsá, verði eyðilagðir." Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruverndasamtökum Íslands í morgun en samtökin fordæma þá ákvörðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfisráðherra, að breyta friðlýsingarskilmálum Þjórsárvera þannig að hægt verði að ráðast í gerð nýrrar útfærslu af Norðlingaölduveitu. Í yfirlýsingunni segir jafnframt að ráðherra hafi með þessari ákvörðun rammaáætlun að engu. Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan. Náttúruverndarsamtök Íslands fordæma ákvörðun umhverfisráðherra Umhverfisráðherra hefur með ákvörðun sinni um breytingu á friðlýsingarskilmálum þeim sem Umhverfisstofnun vann fyrir stækkun friðlandsins í Þjórsárverum - í samræmi við gildandi náttúruverndaráætlun og í samræmi við rammaáætlun - enn á ný opnað fyrir að víðerni svæðisins vestan Þjórsár verði spillt, að hinir stórkostlegu fossar, Kjálkaversfoss, Dynkur og Gljúfurleitarfoss neðar í Þjórsá, verði eyðilagðir. Jafnframt er það svæði sem ráðherra undanskilur frá friðlýsingu líkt og fleygur rekinn inn í hjarta Þjórsárverasvæðisins sem Landsvirkjun og stjórnvöld munu í framtíðinni nýta sér til að stækka fyrirhuguð stíflumannvirki til samræmsi við fyrri áform fyrirtækisins. Ráðherra hefur rammaáætlun að engu og gefur auga leið að ef sitjandi umhverfis-og auðlindaráðherra kemst upp með geðþóttaákvarðanir þvert á gildandi lög og samþykktir Alþingis mun Landsvirkjun - hér eftir sem hingað til - engar sættir virða. Athygli er vakin á að í greinargerð Umhverfisstofnunar með bréfi sínu til Skeiða- og Gnúpverjahrepps, dags. 27. desember s.l., stendur stofnunin fast við fyrri yfirlýsingar um að málsmeðferð stofnunarinnar við vinnu að friðlýsignarskilmálum fyrir stækkun friðlandsins í Þjórsárverum hafi verið í samræmi við lög og góða stjórnsýsluhætti. Umhverfisstofnun hafi í engu brotið gegn Landsvirkjun og að umhverfis- og auðlindaráðherra taki undir með stofnuninni þar að lútandi. … kemst Umhverfisstofnun að þeirri niðurstöðu [dags. 5. júlí 2013] að undirbúningur og málsmeðferð stofnunarinnar hafi verið í samræmi við lög og góða stjórnsýsluhætti, sérstaklega í ljósi þess að Alþingi hafi með samþykkt verndar- og orkunýtingaráætlunar 14. janúar s.l. tekið ákvörðun um að virkjanakosturinn Norðlingaölduveita í 566 - 567,5 m.y.s. færi í verndarflokk áætlunarinnar. Ráðuneytið tekur undir með Umhverfisstofnun að ekki hafi þurft að leita samþykkis Landsvirkjunar fyrir friðlýsingarskilmálum. [áherslubreyting okkar].M.ö.o. þær ástæður sem ráðherra gaf s.l. sumar fyrir frestun á undirritun friðlýsingarskilmála sem fram átti að fara þann 21. júní s.l. hafa reynst fyrirsláttur. Klögumál Landsvirkjunar vegna málsmeðferðar Umhverfisstofnunar eða að sveitarfélög hafi gert alvarlegar athugasemdir við þá málsmeðferð voru bara fyrirsláttur, áttu sér enga stoð í raunveruleikanum.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira