Ferðamenn ítrekað á vanbúnum smábílum á heiðum Jón Júlíus Karlsson skrifar 4. janúar 2014 21:24
Erlendir ferðamenn hunsa ítarlegar aðvaranir sem íslenskar bílaleigur veita. Þetta segir framkvæmdastjóri AVIS á Íslandi. Gistihúseigandi sem tók á móti ástölsku pari sem lenti í ógöngum á Fjarðarheiði segir ólíðandi að erlendir ferðamenn séu sendir á þjóðvegi landsins á vanbúnum bílum. Ítrekað hafa verið fluttar fréttir af því að undanförnu að björgunarsveitir hafi bjargað erlendum ferðamönnum á vanbúnum smábílum við snjóþungar aðstæður. Færst hefur í vöxt að ferðamenn fari út fyrir borgarmörk og upp á heiðar með fyrrgreindum afleiðingum. Hjálmar Pétursson, framkvæmdastjóri AVIS á Íslandi, segir að ferðamönnum sé gert grein fyrir hættunni á íslenskum þjóðvegum en ferðamenn hunsi þær aðvaranir. „Það er hvergi í heiminum þar sem ferðamenn fá jafnmikið af upplýsingum um öryggi og færð á vegum. Þessir ferðamenn láta okkur hins vegar ekki vita hvert þeir eru að fara og þvælast um landið á eigin vegum. Við getum ekki spurt hvern einasta mann hvert hann ætli að fara,“ segir Hjálmar.Á smábíl í hrakningum Ívar Ingimarsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, veitti áströlsku pari gistingu eftir að þau lenti í hrakningum á Fjarðarheiði akandi á smábíl á heilsársdekkjum. Hann spyr sig hvers vegna bílaleigur senda erlenda ferðamenn út á hringveginn á bílum, vitandi af hættunni sem leynist á fjallvegum landsins. „Þetta var Yaris fólksbíll á vetrardekkjum sem voru ekki negld. Að vera á svoleiðis bíl á þessum slóðum er ekki gáfulegt,“ segir Ívar. „Björgunarsveitirnar eru endalaust að þvælast upp á fjallvegi í kringum Ísland til að bjarga fólki og draga niður bíla sem eru gjörsamlega óhæfir til að keyra á þannig veg.“„Druslubílaleigur“ skjóta upp kollinum Bílaleigan SAD Cars leigði ástralska parinu fólksbílinn og treysti parið sér ekki til að halda áfram ferð sinni til Akureyrar án þess að fá negld dekk undir bílinn. Frá hruni hafa sprottið fram bílaleigur sem leigja vanbúna og jafnvel ótryggða bíla. Hjálmar telur þó að sú bílaleiga sem leigði ástralska parinu bíl falli ekki í þann flokk. Þar hafi verið um eðlileg vinnubrögð að ræða. „Við erum lengi búnir að benda á svokallaðar druslubílaleigur en þær eru misjafnar. Nýjasta dæmið var í fréttunum í dag og það var fullkomlega löglegur bíll á fínum heilsársdekkjum. Það eru ekki allar bílaleigur eins slæmar og dæmi voru um í sumar þar sem bílar voru ekki einu sinni tryggðir.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira