Ætlar að endurskoða reglur um siðferðismat Höskuldur Kári Schram skrifar 22. janúar 2014 14:34 Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra.
Illugi Gunnarson menntamálaráðherra ætlar að endurskoða reglur um að kennarar gefi grunnskólanemendum einkunnir fyrir meðal annars persónulega þætti og siðferðileg viðhorf. Gefa á grunnskólanemendum sem útskrifast úr 10. bekk einkunnir fyrir persónulega þætti og siðferðileg viðhorf á næsti ári samkvæmt nýrri aðalnámsskrá sem samþykkt var á síðasta kjörtímabili. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að skiptar skoðanir eru um málið meðal skólastjóra. Hilmar Hilmarsson, skólastóri Réttarholtsskóla, segir í samtali við blaðið að það sé hvorki á færi skólastjórnenda né kennara að leggja dóm á persónuleika nemenda. Illugi hefur sagt að ekki komi til greina að gefa umsögn um sambærilega þætti á prófskírteini framhaldsskólanema. Hann er sömu skoðunar hvað varðar grunnskólanema. „Það er nú meðal annars þess vegna sem að við tókum þá ákvörðun að fresta innleiðingu á þessu nýja kerfi til þess að gefa svigrúm til þess að skoða þetta betur. Það var búin til ný námsskrá sem leggur meiri áherslu á það sem er kallað hæfni nemenda og þar eru ýmiss matskennd atriði. Í sjálfu sér er það ágætt en það er mjög erfitt að ætla að fara gefa umsagnir eða einkunn fyrir slíka þætti. Ég er þeirrar skoðunar sjálfur að það sé mun betra að horfa fyrst og síðast til þess að mæla með hefðbundnum hætti færni nemenda með gamla laginu. En að sjálfsögðu er það þannig að skólastarfið hefur þróast í þessa átt. Við viljum auðvitað að í skólanum sé lögð áhersla á fjölmargt annað heldur bara einhverja grunnfærni en einkunnagjöfin hlýtur að þurfa að vera þannig kerfi sem mark er takandi á og er ekki um of háð mati einstakra kennara og þeirra lífsskoðunum,“ segir Illugi. Hann ætlar að endurskoða þessar breytingar. „Þess vegna byrjaði ég á því að fresta innleiðingunni. Tók ákvörðun um það fyrir nokkru síðan. Það gefur okkur svigrúm til að fara yfir þetta mál. Ég er frekar á þeirri línu að það sé eðlilegra að við séum að gefa umsagnir eða mat með hefðbundnari hætti,“ segir Illugi.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira