Ótrúlegt umburðarlyndi fyrir svartri atvinnustarfsemi Jón Júlíus Karlsson skrifar 22. janúar 2014 20:00
Ríkissjóður verður árlega af tugum milljarða króna vegna svartrar atvinnustarfsemi. Eftirlit með málaflokknum er lítið sem ekkert. Ótrúlegt umburðarlyndi hjá stjórnvöldum segir aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ. Svört atvinnustarfsemi á Íslandi er umtalsverð samkvæmt rannsóknum Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsis og Ríkisskattstjóra. 12-15% launaðra manna á Íslandi fá laun sín greidd með ólögmætum hætti.Hvað er þetta að kosta íslenskt samfélag? „Samfélagslegt tjón áætlum við upp á tugi milljarða,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ. „Það er erfitt að meta nákvæmlega hversu mikið það er en það er mjög umtalsvert. Það tapa í raun og veru allir nema skúrkarnir.“Fáir tilkynna brot Eftirlit með svartri atvinnustarfsemi er af skornum skammti að mati Halldórs. Gistiheimili hafa víða skotið upp kollinum í miðborg Reykjavíkur á síðustu mánuðum og leikur grunur á að hluti þeirra gefi ekki upp tekjur sínar. „Okkur þykir vera ótrúlega mikið umburðarlyndi hjá stjórnmálamönnum, stjórnvöldum og eftirlitsstofnunum og reyndar í samfélaginu öllu. Það er alveg ótrúlegt í ljósi þess að það eru svo margir sem tapa á þessari svikastarfsemi. Það eru alltof fáir sem láta vita.“Annað viðhorf hjá nágrannaþjóðum Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartar framtíðar vakti athygli á málinu á Alþingi í dag. Hún bjó um skeið í Danmörku þar sem talsvert meiri umræða er um svartra atvinnustarfsemi en á Íslandi. „Það er svolítið eins og að við tipplum á tánum í kringum þennan málaflokk. Það er ekki þannig á hinum Norðurlöndunum. Þar er fjallað um þetta samfélagsvandamál eins og hvert annað enda er það þannig að bótasvik og skattsvik grafa undan velferðarkerfinu og á ekki að líðast.“
Mest lesið Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Fleiri fréttir Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sjá meira