Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir heimilisofbeldi Samúel Karl Ólason skrifar 22. janúar 2014 23:06 Héraðsdómur Norðurlands eystra. Vísir/Pjetur
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi mann í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára í síðustu viku fyrir að hafa í tvígang gengið í skrokk á sambýliskonu sinni. Frá þessu er sagt á vefnum Akureyri vikublað. Í ákærunni segir að maðurinn hafi ráðist á konuna á og við heimili þeirra í janúar 2012 og sneri upp á handlegg hennar og kastað henni upp í rúm. Þá sparkaði hann einnig eða kýldi hana í kviðinn og fyrir utan hús þeirra skallaði maðurinn konuna ítrekað svo hún hlaut áverka í andliti. Í júní á síðasta ári réðst hann aftur á konuna og togaði hana til á hárinu og beitti hana frekar ofbeldi. Hár á höfði konunnar losnaði, hún hlaut tveggja til þriggja sentímetra upphleypta kúlu á enni, eymsli í vinstri og hægri öxl og hægri upphandlegg. Þá hlaut hún einnig lítið hruflsár á baki. Á meðan á þessu stóð mun maðurinn hafa hótað henni og meðal annars sagt við hana: „Það ætti að berja þig, það ætti að drepa þig og þú átt skilið að vera drepin, ég ætla að drepa þig.“ Í dómnum segir að samkvæmt rannsóknargögnum lögreglu og eins og fram hafi komið fyrir dómi, hafi sambúðin á stundum verið stormasöm, en án sérstakra aðgerða lögreglu eða annarra yfirvalda. Sex lögreglumenn voru kallaðir á heimili þeirra þegar fyrri brotin áttu sér stað, eftir að maðurinn hafði sturlast við að konan ætlaði að flýja heimilið með börnin, með aðstoð foreldra hans. Manninum var tilkynnt ákvörðun lögreglustjóra um að hann skildi sæta nálgunarbanni gagnvart konunni, heimili þeirra og barnanna. Daginn eftir tilkynnti konan að hún teldi að ekki væri þörf á nálgunarbanni og að hún hygðist ekki kæra. Þegar seinni brotin áttu sér stað voru fjórir lögreglumenn kallaðir á heimili þeirra eftir að tilkynning barst um mikið ofbeldi og hótanir ættu sér stað. Einnig var tilkynnt að börn væru á heimilinu. Lögreglumaður lýsir aðstæðum á þann veg að við útidyrnar hafi hann séð hinn ákærða draga sambýliskonu sína á hárinu inn í forstofu. Hann hafi verið við það að skella hurðinni þegar lögreglumennirnir spörkuðu hana upp og færðu manninn í járn. Maðurinn er sagður hafa verið mjög æstur og reyndi hann að koma ábyrgðinni yfir á konuna með því að segja hana hafa hótað sér og börnunum með hnífi. Enginn hnífur fannst þó á vettvangi. Í dómsorðum segir að sökum þess að maðurinn hafi leitað sér sérfræðiaðstoðar og lýst yfir iðran gjörða sinna og að dráttur hafi orðið á meðferð málsins sé refsingin skilorðsbundin.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira